Íslenski boltinn

Sigur í fyrsta leik Fram undir stjórn Péturs

Pétur Pétursson.
Pétur Pétursson. vísir/vilhelm
Fram er komið áfram í 32-liða úrslitin í Borgunarbikar karla eftir sigur á Gróttu, 0-2, í kvöld.

Það voru þeir Eyþór Helgi Birgisson og Einar Bjarni Ómarsson sem skoruðu mörk Fram á Vivaldi-vellinum á Nesinu í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Fram undir stjórn Péturs Péturssonar sem var ráðinn sem þjálfari á dögunum.

Hann stýrði liðinu í kvöld ásamt Kristni R. Jónssyni sem var að stýra liðinu í síðasta skipti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×