Íslenski boltinn

Upprifjun: Robbi Gunn var í Fylkisliðinu sem skellti Arnari og félögum 6-1 fyrir 19 árum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Fylkir og Breiðablik mætast í lokaleik fyrstu umferðar Pepsi-deildar karla í fótbolta á Fylkisvelli klukkan 19.15 í kvöld.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram á sunnudagskvöldið en var færður vegna vallarskilyrða á Fylkisvelli. Árbæingar vildu vera með völlinn í góðu standi fyrir fjögurra leikja törn um miðjan mánuðinn.

Þetta er í annað skiptið á síðustu 19 árum sem Breiðablik og Fylkir eigast við í fyrstu umferð, en þegar liðin mættust á Kópavogsvelli í fyrstu umferð Sjóvá-Almennra deildarinnar árið 1996 fengu Blikar skell.

Fylkir var þá nýliði í deildinni en byrjaði af krafti og vann 6-1 sigur. Það er stærsti sigur nýliða í fyrstu umferð síðustu 30 árin.

1-0 yfir í hálfleik

Það sem er í raun ótrúlegast við leikinn er að Breiðablik var 1-0 yfir í hálfleik þökk sé fallegu marki Sævars Péturssonar, bróður Lindu Pé, sem er framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA í dag.

Nýliðunum héldu engin bönd í seinni hálfleik, en þeir settu sex mörk á Blikana. Andri Marteinsson, sem hafði komið frá Þór um veturinn, kom gestunum á bragðið á 53. mínútu og Enes Cogis kom Fylki yfir, 2-1, þremur mínútum síðar.

Fylkisgoðsögnin Kristinn Tómasson kom Árbæjarliðinu í 3-1 á 57. mínútu, en þá voru Fylkismenn búnir að skora þrjú mörk á fjögurra mínútna kafla. Erfiður dagur fyrir Hajrudin Cardaklija í markinu sem gekk í raðir Leifturs eftir tímabilið.

Þórhallur Dan Jóhannsson bætti við fjórða markinu áður en Kristinn Tómasson og Erlendur Þór Gunnarsson innsigluðu stórsigur Fylkis, 6-1, á 80. og 82. mínútu.

Bæði lið fóru niður

Arnar Grétarsson, núverandi þjálfari Breiðabliks, var fyrirliði Breiðabliks þetta tímabilið, en í liðinu voru leikmenn á borð við Skagamanninn Pálma Haraldsson og Hákon Sverrisson. Eftir að sleppa naumlega við fall sumarið áður fóru Blikarnir niður í lok tímabilsins 1996.

Þrátt fyrir að vera með nokkuð sterkt lið og leikmenn á borð við Kjartan Sturluson, Enes Cogic, Ólaf Stígson, Andra Marteinsson, Finn Kolbeinsson og Kristinn Tómasson fylgdu Fylkismenn Blikum niður um deild.

Verðandi silfurhetja var í leikmannahópnum hjá Fylki, en varamarkvörður liðsins var Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta. Róbert var efnilegur knattspyrnumarkvörður á árum áður.

Vonandi fyrir áhorfendur í kvöld verður boðið upp á sjö mörk eða fleiri, en Arnar Grétarsson vonast vafalítið eftir því að fá ekki sömu útreið í fyrstu umferð gegn Fylki og hann gerði sem fyrirliði liðsins fyrir 19 árum síðan.

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×