Íslenski boltinn

Yfir tíu þúsund manns mættu á fyrstu umferðina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leiknisfólkið var í stuði á Hlíðarenda.
Leiknisfólkið var í stuði á Hlíðarenda. Vísir/Valli
Það var frábær mæting á 1. umferð Pepsi-deildar karla en alls mættu 10305 manns á leikina sex eða 1717 manns að meðaltali í leik.

Þetta er önnur besta mæting á fyrstu umferð á eftir sumrinu 2012 þegar 134 fleiri mættu á leikina sex.

Það komu yfir þúsund manns á alla sex leiki 1. umferðarinnar og yfir tvö þúsund manns á tvo þá síðustu sem voru leikur KR og FH á KR-vellinum á mánudagskvöldið (2558) og leikur Fylkis og Breiðabliks á Fylkisvellinum á fimmtudagskvöldið (2220).

Það mættu alls 2163 fleiri á 1. umferðina í ár heldur en í fyrra og það voru einnig undir 1500 manns að meðaltali á leiki fyrstu umferðarinnar árið 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×