Körfubolti

Love fór í aðgerð og tímabilið búið

Öxlin fór illa með Love.
Öxlin fór illa með Love. vísir/getty
Það er nú orðið endanlega ljóst að Kevin Love spilar ekki meira með Cleveland Cavaliers á þessu tímabili.

Hann fór úr axlarlið um síðustu helgi og hefur nú farið í aðgerð vegna meiðslanna. Aðgerðin kallar á hvíld í fjóra til sex mánuði.

Cleveland er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar eftir að hafa sópað Boston í fyrstu umferð.

Cavaliers mun mæta annað hvort Chicago eða Milwaukee í næstu umferð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×