Lou Williams besti sjötti maðurinn í NBA-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2015 17:30 Lou Williams. Vísir/Getty
Lou Williams, 28 ára gamall bakvörður Toronto Raptors, var í dag útnefndur besti sjötti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á þessu tímabili. Williams kom með 15,5 stig að meðaltali inn af bekknum og hjálpaði Toronto Raptors að setja nýtt félagsmet með því að vinna 49 leiki. Williams var að spila sitt fyrsta tímabil með Toronto Raptors en þetta var tíunda tímabil hans í NBA-deildinni. Hann er fyrsti leikmaður Toronto Raptors sem fær þessi verðlaun. 78 af 130 íþróttafréttamönnum sem skipa valnefndina settu Lou Williams í fyrsta sætið en hann fékk alls 502 stig. Isaiah Thomas hjá Boston Celtics varð annar með 324 stig en í þriðja sætinu kom síðan Jamal Crawford hjá Los Angeles Clippers. Jamal Crawford vann þessi verðlaun í fyrra en J.R. Smith fékk þau fyrir tímabilið 2012-13. Williams kom inn af bekknum í öllum 80 leikjum sínum á tímabilinu en hann var að skora þessi 15,5 stig á 25,2 mínútum að meðaltali í leik. Hann varð stigahæsti leikmaður liðsins í 18 leikjum og Toronton vann 14 af þessum 18 leikjum.Umfjöllun um verðlaunin á heimasíðu NBA.
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira