Handbolti

Erlingur og félagar sópuðu Linz

Erlingur Richardsson.
Erlingur Richardsson. vísir/daníel
Lið Erlings Richardssonar, Westwien, er komið í undanúrslit í austurríska handboltanum.

Westwien vann HC Linz, 30-33, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum í kvöld.  Westwien vann því einvígi liðanna, 2-0.

Fabian Posch fór algjörlega á kostum í liði Westwien í kvöld og skoraði tíu mörk. Robert Machinek skoraði sex mörk.

Julius Hoflehner skoraði átta mörk fyrir Linz en það dugði ekki til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×