Körfubolti

Love spilar líklega ekki meira með Cleveland

Hér er Love búinn að fara úr axlarlið.
Hér er Love búinn að fara úr axlarlið. vísir/getty
Það er komið babb í bát Cleveland Cavaliers sem ætlar sér NBA-meistaratitilinn.

Kevin Love fór úr axlarlið í leik liðsins á sunnudag og nú hefur Cleveland staðfest að það sé mjög ólíklegt að hann spili aftur á þessu tímabili.

Hann mun þurfa að minnsta kosti fjórar til sex vikur til að jafna sig á þessum meiðslum. Ef hann nær ekki að jafna sig þá þarf hann að fara í aðgerð.

Cleveland er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar og mun mæta sigurvegaranum úr rimmi Chicago og Milwaukee í næstu umferð.

Love gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Cleveland enda ekk útséð með að hann verði áfram í herbúðum félagsins á næstu leiktíð.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×