Íslenski boltinn

Schoop: Allir segja að það sé frábært að spila á Íslandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/OB.dk
Fyrr í dag var tilkynnt að danski miðjumaðurinn Jacob Schoop hefði samið við KR en hann kemur til félagsins frá OB. Samningur hans við félagið gildir fram á sumar samkvæmt heimasíðu OB.

Schoop gekk í raðir OB árið 2011 og hafði verið fastamaður í liði félagsins þar til að tækifærunum fór að fækka nýverið. Samningur hans við félagið átti að renna út í sumar og ákvað hann því að halda til Íslands þegar honum bauðst að ganga til liðs við KR.

„Þetta er skrýtin staða því ég hef ekki oft skipt um félag á mínum ferli,“ sagði Schoop í viðtali á heimasíðu OB. „Ég kveð því OB með söknuði og allt það góða fólk hér.“

„En ég hlakka mikið til að spila og sýna hvað ég get í íslensku deildinni. Mér hef fengið afskaplega jákvæða mynd af KR sem hafði mikinn vilja til að semja við mig. Ég veit að KR er lið sem vill spila boltanum mikið, sem er ef til vill óvenjulegt fyrir íslenskt félagslið. En það skipti miklu í ákvörðun minni.“

Schoop er í stórum hópi danskra knattspyrnumanna sem hafa spilað með liðum í Pepsi-deild karla á síðustu árum með góðum árangri.

„Ég þekki nokkra sem spila eða hafa spilað í íslensku deildinni og allir segja þeir að það sé góð reynsla. Það er gríðarlegur áhugi á fótbolti þarna sem smitar út frá sér og hjálpar leikmönnum að ná sínu allra besta fram.“

„KR stefnir á að vera í hópi efstu liðanna og við byrjum á því að spila við Stjörnuna í Meistarakeppninni. Þar mætti ég Jeppe Hansen, fyrrum samherja mínum.“

„Svo verður fyrsti deildarleikurinn gegn liði [FH] sem verður í beinni samkeppni við okkur um titilinn. Þetta verður því spennandi byrjun á tímabilinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×