Curry í stuði í sigri Golden State | Myndbönd Anton Ingi Leifsson skrifar 19. apríl 2015 11:30 Curry í leiknum í nótt. vísir/getty
Stephen Curry var í stuði fyrir Golden State Warriors sem komst yfir í einvíginu gegn New Orleans Pelicans í úrslitakeppni NBA í nótt. Warrios fór með sigur af hólmi, 106-99. Golden State byrjaði af miklum krafti og vann fyrsta leikhlutann 28-13. Þeir voru 59-43 yfir í hálfleik, en í síðari hálfleik gáfu New Orleans-menn áhorfendum spennandi leik. Lokatölur þó sjö stiga sigur Golden State, 106-99. Stephen Curry var stigahæstur hjá Golden State með 34 stig, en auk þess tók hann fjögur fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Anthony Davis gerði 35 stig fyrir Pelicans. Í átta liða úrslitum Austurdeildarinnar vann Houston góðan sigur á Dallas, 118-108. Houston lagði grunninn að sigrinum með góðum fyrsta leikhluta, en þeir unnu hann 32-19. James Harden spilaði vel í liði Houston. Hann skoraði 24 stig og tók ellefu fráköst. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki stigahæstur með 24 stig. Washington vann sjö stiga sigur á Toronto, 96-86. Leikurinn var jafn og spennandi, en framlengja þurfti leikinn. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 82-82, en liðsmenn Washington voru mun sterkari aðilinn í framlengingunni. Paul Pierce gerði tuttugu stig fyrir Washington, en Amir Johnson gerði átján stig fyrir Toronto. Chicago vann tólf stiga sigur á Milwaukee, 103-91. Staðan í hálfleik var 60-51, Chicago í vil og heldu þeir forystunni út síðari hálfleikinn. Krhis Middleton gerði átján stig fyrir Milwaukee, en James Butler gerði 25 fyrir Chicago. Derrick Rose bætti við 23 stigum fyrir Chicago. Fjórir leikir fara fram í dag, en þá mætast Cleveland og Boston, Atlanta og Brooklyn, Portland og Mempish og Clippers og San Antonio.Öll úrslit næturinnar: Washington - Toronto 93-86 New Orleans - Golden State 99-106 Milwaukee - Chicago 91-103 Dallas - Houston 108-118Harden var í stuði í nótt: Fjögur stig frá Dirk í sömu sókninni. Það gerist ekki oft: Svo skemmtilegt, hjá Rose: Flautukarfa:
NBA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjá meira