Körfubolti

NBA: James Harden skoraði 50 stig í nótt | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
James Harden.
James Harden. Vísir/Getty
James Harden auglýsti sig vel í nótt í baráttunni um að vera kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta á þessu tímabili.

Harden var með 50 stig og 10 fráköst þegar Houston Rockets vann 118-108 heimasigur á Denver Nuggets.

Houston Rockets hélt þarna upp á tuttugu ára afmæli meistaraliðs félagsins frá 1994 og 1995 og það virtist hafa góð áhrif á Harden að sjá menn eins og Hakeem Olajuwon og Clyde Drexler í stúkunni.

Harden hefur aldrei áður skorað svona mikið í einum leik og hann var fyrsti leikmaður Houston Rockets til að skora fimmtíu stig síðan að Hakeem Olajuwon skoraði 51 stig á móti Boston Celtics 18. janúar 1996.

Harden hafði mest áður skorað 46 stig í einum leik. Þetta var sjöundi leikur hans á tímabilinu þar sem hann skorar 40 stig eða meira. Hann hefur líka 29 sinnum skorað 30 stig eða meira.

Brandan Wright var með 16 stig og 7 varin skot þegar Phoenix Suns vann 74-72 sigur á New Orleans Pelicans sem lék án stjörnuleikmanns síns Anthony Davis. New Orleans er þar með einum leik á eftir Oklahoma City Thunder í baráttunni um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar.

Gordon Hayward var með 22 stig og Trey Burke kom með 17 stig inn af bekknum þegar Utah Jazz vann 80-73 sigur á Los Angeles Lakers. Þetta var fimmtugasta tapið á tímabilinu hjá Lakers. Utah Jazz liðið er aftur á móti búið að vinna 12 af 14 leikjum sínum frá Stjörnuleikshelginni.

Zach LaVine skoraði 6 af 20 stigum sínum í framlengingu þegar Minnesota Timberwolves vann 95-92 sigur á New York Knicks í uppgjöri tveggja lélegustu liða deildarinnar. Minnesota var búið að tapa sex leikjum í röð en hefur nú unnið einum leik meira en New York. Kevin Martin skoraði 22 stig fyrir Timberwolves og nýliðinn Andrew Wiggins var með 20 stig.



Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt:

New York Knicks - Minnesota Timberwolves     92-95     (framlenging)    

Houston Rockets - Denver Nuggets     118-108         

Phoenix Suns - New Orleans Pelicans     74-72         

Los Angeles Lakers - Utah Jazz     73-80     



Staðan í NBA-deildinni

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×