Handbolti

Guðmundur Árni markahæstur hjá Mors-Thy | Vignir skoraði fimm í tapi Midtjylland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Árni átti flottan leik fyrir Mors-Thy í dag.
Guðmundur Árni átti flottan leik fyrir Mors-Thy í dag.
Guðmundur Árni Ólafsson var markahæstur í liði Mors-Thy með sex mörk þegar liðið vann þriggja marka sigur, 25-28, á Skanderborg á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Selfyssingurinn þurfti aðeins sjö skot til að skora þessi sex mörk en hann hefur spilað vel með Mors-Thy í vetur. Róbert Aron Hostert lék ekki með liðinu í dag.

Vignir Svavarsson skoraði fimm mörk þegar Midtjylland tapaði með eins marks mun fyrir Århus á heimavelli, 25-26. Rune Ohm skoraði sigurmark Århus úr vítakasti þegar átta sekúndur voru eftir af leiknum.

Þetta var annað tap Midtjylland í röð en Vignir og félagar eru í 6. sæti með 27 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×