Handbolti

Guif tekið í bakaríið

Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. vísir/aðsend
Íslendingaliðið Guif fékk skell í toppslag í sænska handboltanum í kvöld.

Þá tók lið Alingsås sveina Kristjáns Andréssonar í bakaríið, 30-23. Hálfleikstölur voru 15-8 fyrir Alingsås. Munurinn á liðunum var mest tíu mörk, 20-10.

Atli Ævr Ingólfsson skoraði sex mörk fyrir Guif í kvöld, þar af tvö úr vítum. Aron Rafn Eðvarðsson varði fimm skot og var með 28 prósenta markvörslu.

Þrátt fyrir tapið er Guif enn í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar en Alingsås er einu stigi á eftir þeim í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×