Körfubolti

Háskólar vilja semja við son LeBron James

LeBron James yngri.
LeBron James yngri.
Tíu ára gamall sonur LeBron James, LeBron James yngri, er farinn að vekja mikla athygli enda hæfileikaríkur eins og pabbinn.

Háskólar í Bandaríkjunum eru þegar farnir að gera hosur sínar grænar fyrir drengnum og pabbinn er ekkert allt of ánægður með það.

„Hann er þegar búinn að fá tilboð frá háskólum. Þetta er bilun og ætti í raun að vera brot á reglum. Það á ekki að ganga á eftir tíu ára börnum," sagði LeBron pirraður.

Sjá einnig: Sonur LeBron sýndi snilldartilþrif í Stjörnuleik

Strákurinn sýndi frábær tilþrif í stjörnuleik efnilegustu leikmanna landsins á dögunum en búið er að fylgjast með honum lengur en það.

„Hann spilar alveg eins og ég. Hann hefur góða tilfinningu fyrir því sem er að gerast og vill frekar gefa boltann og búa eitthvað til frekar en að taka skotið sjálfur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×