Körfubolti

KIA framleiðir sérstakan LeBron-lúxusbíl fyrir Bandaríkjamarkað

LeBron James.
LeBron James. vísir/getty
KIA er ekki vinsælasti lúxusbíllinn í Bandaríkjunum en LeBron James á að breyta því.

Hann er með samning við bílaframleiðandann sem er farinn að ryðja sér til rúms á lúxusbílamarkaðnum. Neytendur eru ekki enn að kaupa þá hugmynda að KIA geti verið lúxusbíll og salan á bílnum því engin.

Þá þurfa menn að vera hugmyndaríkir. Það eru strákarnir hjá KIA. Á markaðinn er að koma sérstök King James-lína af bílnum. Fyrir þá sem hafa verið í dái lengi þá kallar LeBron sig King James.

NBA er einnig með samning við KIA sem og Blake Griffin, stjarna LA Clippers.

Hér að neðan má sjá KIA-auglýsingu með LeBron og mynd af merkinu sem verður á King James-útgáfunni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×