Handbolti

Atli Ævar markahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. vísir/aðsend
Guif varð af mikilævgum stigum í toppbaráttu sænsku deildarinnar í kvöld er liðið tapaði fyrir Malmö, 31-25. Malmö náði forystunni snemma í leiknum og lét hana aldrei af hendi.

Atli Ævar Ingólfsson var annar tveggja markahæstu leikmanna Guif með sex mörk og þá stóð Aron Rafn Eðvarðsson í markinu hjá liðinu. Kristján Andrésson, fyrrum landsliðsmaður, er þjálfari Guif.

Guif er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar en varð af tækifæri í kvöld til að minnka forystu Kristianstad á toppnum í fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×