Chris Paul um kvendómara í NBA: Kannski ekki rétta starfið fyrir hana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2015 18:00 Chris Paul og Lauren Holtkamp. Vísir/Getty
Chris Paul, leikstjórnandi Los Angeles Clippers og stjörnuleikmaður Vesturdeildarinnar, var allt annað en sáttur með dómarann Lauren Holtkamp í tapi á móti Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lauren Holtkamp er önnur tveggja kvenna sem dæmir í NBA-deildinni í vetur en hún gaf Chris Paul tæknivillu í leiknum þegar 10:17 voru eftir af þriðja leikhlutanum. Leikmenn Los Angeles Clippers voru þá að reyna að koma boltanum sem fyrst í leik eftir vítaskot hjá Cleveland-liðinu og Chris Paul var ekki ánægður með að Lauren Holtkamp stoppaði það. „Þessi tæknivilla sem ég fékk var fáránleg. Þetta var skelfilegt. Það er ekki möguleiki að þetta sé tæknivilla," sagði Chris Paul við blaðamenn eftir leikinn. „Við reynum alltaf að koma boltann fljótt upp völlinn og þegar við reyndum það þarna þá sagði hún: Uh-uh. Ég sagði: Af hverju Uh-uh. Hún gaf mér þá tæknivillu. Þetta er fáránlegt. Þetta er kannski ekki rétta starfið fyrir hana," sagði Chris Paul. Los Angeles Clippers fékk annars fimm tæknivillur í leiknum og Matt Barnes var rekinn út úr húsi eftir að hafa fengið sína aðra tæknivillu. Lauren Holtkamp er 33 ára og þriðja konan sem dæmir í NBA. Hinar eru Dee Kantner (nú yfirmaður dómara í WNBA-deildinni) og Violet Palmer (dæmir í NBA í dag). Bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað um ummæli Chris Paul og nú er að sjá hvort að hann hafi nælt sér í sekt hjá Adam Silver.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira