Handbolti

Goluza hættur með Króata

Goluza á HM í Katar.
Goluza á HM í Katar. vísir/epa
Króatar eru í leit að nýjum landsliðsþjálfara þar sem Slavko Goluza er hættur.

Hann sagði af sér aðeins fimm dögum eftir að HM í Katar lauk. Króatar féllu úr leik í átta liða úrslitum keppninnar eftir að hafa verið óeðlilega ósannfærandi í sínum leik.

Goluza var landsliðsþjálfari í fimm ár en hann tók við liðinu af Lino Cervar.

„Ég tók þessa ákvörðun eftir allt sem gekk á hjá okkur á þessu móti. Ég lagði mig allan fram og reyndi að vera fagmannlegur."

Noka Serdarusic, fyrrum þjálfari Kiel, er á meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×