Handbolti

Elahmar til Flensburg

Elahmar sækir að vörn Þjóðverja á HM.
Elahmar sækir að vörn Þjóðverja á HM. vísir/epa
Hinn stórkostlegi handboltamaður frá Egyptalandi, Ahmed Elahmar, er loksins á leið í þýska boltann.

Hann er búinn að skrifa undir samning við Evrópumeistara Flensburg fram á sumar. Hann mun leysa Holger Glandorf af hólmi en hann er meiddur.

Þessi 31 árs gamli, örvhenti leikmaður sló í gegn á HM í Katar með frábærum leik og sýndi að hann er meðal þeirra allra bestu í íþróttinni.

Hann kemur frá El Jaish í Katar en líklegt er að hann haldi svo aftur í peningana í Katar næsta sumar. Elahmar er orðinn 31 árs gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×