NBA: Lakers vann Chicago Bulls í tvíframlengdum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. janúar 2015 08:18 Jordan Hill ver hér skot frá Derrick Rose. Vísir/AP
Los Angeles Lakers endaði níu leikja taphrinu sína í NBA-deildinni í körfubolta í nótt eftir sigur á Chicago Bulls í tvíframlengdum leik en tap hefði þýtt nýtt félagsmet yfir flest töp í röð. Memphis Grizzlies vann sinn fimmta leik í röð í nótt. Jordan Hill skoraði 26 stig í 123-118 sigri Los Angeles Lakers á Chicago Bulls en hann tryggði sínu liði líka seinni framlengingu með körfu í lok framlengingar númer eitt. Wayne Ellington var með 23 stig fyrir Lakers-liðið og nýliðinn Jordan Clarkson bætti við 18 stigum í fyrsta sigurleik Lakers síðan 9. janúar síðastliðinn en liðið lék án Kobe Bryant sem verður ekkert meira með í vetur. Tap hefði þýtt tíu töp í röð og jöfnun á óvinsælu félagsmeti Los Angeles Lakers sem liðið setti þegar Magic Johnson þjálfari það árið 1994. Jimmy Butler skoraði 35 stig fyrir Chicago Bulls en liðið tryggði sér framlengingu með því að vinna upp sjö stiga forskot á aðeins 70 sekúndum í lok venjulegs leiktíma. Pau Gasol mætti þarna sínum gömlu félögum og var með 20 stig og 10 frákast. Það var hans karfa sem kom leiknum í framlengingu.Zach Randolph var með 15 stig og 17 fráköst þegar Memphis Grizzlies hélt Denver Nuggets undir 70 stigum og vann 99-69. Þetta var fimmti sigur Memphis í röð og tíundi leikurinn í röð þar sem Zach Randolph nær tvennunni. Jeff Green skoraði 13 stig fyrir Memphis og þeir Courtney Lee, Nick Calathes og Beno Udrih voru allir með 11 stig. Wilson Chandler og Kenneth Faried skoruðu báðir 10 stig fyrir Denver sem tapaði í áttunda sinn í síðustu níu leikjum.Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt: Orlando Magic - Milwaukee Bucks 100-115 Indiana Pacers - New York Knicks 103-82 Memphis Grizzlies - Denver Nuggets 99-69 Los Angeles Lakers - Chicago Bulls 123-118 (tvíframlengt)Staðan í NBA-deildinni
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira