NBA: Oklahoma City loksins með fleiri sigra en töp | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2015 07:48 Kevin Durant á ferðinni í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City Thunder komst yfir fimmtíu prósent sigurhlutfall í fyrsta sinn á tímabilinu eftir sigur á Miami Heat í NBA-deildinni í nótt. NBA-meistarar San Antonio Spurs unnu sinn fjórða leik í röð.Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu báðir 19 stig þegar Oklahoma City Thunder vann 94-86 útisigur á Miami Heat en eftir leikinn er Thunder-liðið með 21 sigur og 20 töp á tímabilinu. Durant gældi við þrennuna en hann var auk stiganna með 8 fráköst og 8 stoðsendingar. Westbrook var með 10 fráköst og 6 stoðsendingar auk stiganna sinna. OKC hefur unnið 13 af 18 leikjum sínum síðan að besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili snéri aftur eftir meiðsli. Dwyane Wade skoraði 18 stig fyrir Miami Heat og Chris Bosh var með 16 stig en liðið hefur tapað 13 af 20 heimaleikjum sínum á tímabilinu. Miami tók aðeins 68 skot á móti 92 hjá OKC enda tapaði Miami-liðið 10 fleiri boltum en Thunder í þessum leik.Kawhi Leonard var með 17 stig og 15 fráköst þegar San Antonio Spurs vann 109-99 útsigur á Denver Nuggets. Leonard og Tony Parker hafa snúið aftur eftir meiðsli og Spurs-liðið er komið á skrið en þetta var fjórði sigur liðsins í röð. San Antonio tapaði meðal annars 9 sinnum í 14 leikjatörn í desember. Tony Parker var með 18 stig og 7 stoðsendingar, Tim Duncan skoraði 16 stig og Manu Ginobili var með 11 stig og 8 stoðsendingar á 24 mínútum. Kenneth Faried skoraði 26 stig og tók 14 fráköst fyrir Denver-liðið og Arron Afflalo skoraði 21 stig en það breytti ekki því að liðið tapaði sínum fjórða leik í röð.Úrslit úr öllum leikjum í NBA-deildinni í nótt: Miami Heat - Oklahoma City Thunder 86-94 Denver Nuggets San Antonio Spurs 99-109Staðan í NBA-deildinni.
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira