Stóri Svartfellingurinn tróð yfir Gasol með látum | Myndband Tómas Þór Þóraðrson skrifar 13. janúar 2015 11:30
Orlando Magic batt enda á sex leikja taphrinu í gærkvöldi þegar liðið kom á óvart og vann góðan sigur gegn sterku liði Chicago Bulls á útivelli, 121-114. Miðherjinn stóri í liði Orlando, Nikola Vucevic, átti frábæran leik og skoraði 33 stig auk þess sem hann tók 11 fráköst. Hann er nú búinn að skora 77 stig í síðustu tveimur leikjum, en hann bætti persónulegt met sitt í deildinni fyrir tveimur dögum þegar hann skoraði 34 stig í einum og sama leiknum. Svartfellingurinn stóri, sem er 213 cm hár, bauð líka upp á eina rosalega troðslu þar sem hann setti sjálfan Pau Gasol á plakat og það með látum. Vucevic leiðist ekki að keyra inn að körfunni og það gerði hann undir lok þriðja leikhluta í nótt. Hann fékk boltann hægra megin í teignum, dripplaði einu sinni og tróð svo boltanum yfir Gasol. Þessa flottu troðslu má sjá í spilaranum hér að ofan.
NBA Tengdar fréttir Toronto varð undir Detroit-vagninum | Myndbönd Eftir skelfilega byrjun stefnir Detroit Pistons óðfluga á úrslitakeppnina í NBA-deildinni. 13. janúar 2015 07:00 Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Sjá meira
Toronto varð undir Detroit-vagninum | Myndbönd Eftir skelfilega byrjun stefnir Detroit Pistons óðfluga á úrslitakeppnina í NBA-deildinni. 13. janúar 2015 07:00