Handbolti

Vignir með þrjú í stórsigri Midtjylland

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vignir skoraði þrjú mörk fyrir Midtjylland í dag.
Vignir skoraði þrjú mörk fyrir Midtjylland í dag. vísir/getty
Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk þegar Midtjylland vann öruggan tíu marka sigur, 20-30, á SonderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Þetta var þriðji sigur Midtjylland í röð en liðið er í 3. sæti deildarinnar með 25 stig, tveimur stigum á eftir Aalborg og átta stigum á eftir toppliði Kolding.

Vignir, sem kom til Midtjylland frá Minden í sumar, hefur skorað 60 mörk fyrir danska liðið í vetur.

Þetta var síðasti leikur Midtjylland á árinu 2014 en danska deildin hefst aftur í febrúar eftir hléið sem gert verður vegna HM í Katar.

Daníel Freyr Andrésson varði sex skot í marki SonderjyskE í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×