Butler og Curry bestir í NBA í nóvember Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2014 17:30 Jimmy Butler. Vísir/Getty
Jimmy Butler, framherji Chicago Bulls, og Stephen Curry, leikstjórnandi Golden State Warriors, voru valdir bestu leikmenn nóvembermánaðar í NBA-deildinni í körfubolta. Jabari Parker og Andrew Wiggins voru valdir bestu nýliðar mánaðarins.Jimmy Butler fór fyrir liði Chicago Bulls í nóvember (og október) og var valinn sá besti í Austurdeildinni. Butler var níundi stigahæsti leikmaður mánaðarins með 21,9 stig í leik og komst í tuttugu stigin í ellefu leikjum. Butler hefur verið þekktari fyrir góðan varnarleik en hefur tekið meira af skarið í sókninni í vetur enda að hækka meðalskor sitt um átta stig. Chicago Bulls liðið vann 11 af 17 leikjum sínum í mánuðinum.Stephen Curry og félagar í Golden State Warriors unnu 14 af 16 leikjum sínum í nóvember (og október) en Curry fór á kostum og var valinn besti leikmaður Vesturdeildarinnar. Stephen Curry varð fimmti stigahæsti leikmaður mánaðarins með 23,8 stig í leik en hann var einnig í fimmta sæti í stoðsendingum með 7,8 slíkar í leik og í sjöunda sæti í stolnum boltum (1,94 í leik). Curry var annar tveggja leikmanna deildarinnar sem náði að nýta að minnsta kosti 49 prósent skota sinn utan af velli (49,6 prósent), 40 prósent þriggja stiga skota sinna (41,8 prósent) og 90 prósent vítanna (92,3 prósent).Aðrir sem komu til greina sem leikmenn mánaðarins voru þeir Jeff Teague hjá Atlanta Hawks, LeBron James hjá Cleveland Cavaliers, James Harden hjá Houston Rockets, Blake Griffin og Chris Paul hjá Los Angeles Clippers, Marc Gasol hjá Memphis Grizzlies, Chris Bosh hjá Miami Heat, Anthony Davis hjá New Orleans Pelicans, LaMarcus Aldridge og Damian Lillard hjá Portland Trailblazers, DeMarcus Cousins hjá Sacramento Kings, Kyle Lowry hjá Toronto Raptors og ohn Wall hjá Washington Wizards.Jabari Parker hjá Milwaukee Bucks og Andrew Wiggins hjá Minnesota Timberwolves voru valdir bestu nýliðar mánaðarins en þeir voru einmitt valdir fyrsti í nýliðavalinu í sumar. Parker var stigahæstur nýliða (11,9 stig í leik) og í öðru sæti í fráköstum (6,1 í leik) og stolnum boltum (1,33 í leik). Wiggins var í öðru sæti í stigum meðal nýliða (11,6) og efstur í þriggja stiga skotnýtingu (44 prósent).
NBA Mest lesið Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira