Þrenna Agüero tryggði lygilegan sigur City á Bayern | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. nóvember 2014 13:15 Sergio Agüero skorar í kvöld. vísir/getty
Möguleikar Manchester City á sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu jukust til muna í kvöld er liðið vann ótrúlegan 3-2 sigur á Bayern München í kvöld. Argentínumaðurinn Sergio Agüero var allt í öllu í liði City en hann skoraði öll mörk liðsins í kvöld, þar af tvö á síðustu fimm mínútum leiksins. Hann kom City yfir með marki úr vítaspyrnu á 21. mínútu eftir að Mehdi Benatia, varnarmaður Bayern, braut á honum í teignum. Benatia fékk að líta rauða spjaldið og Agüero skoraði örugglega úr vítinu. En þrátt fyrir að vera manni færri komst Bayern yfir áður en fyrri hálfleikur var allur. Xabi Alonso jafnaði með marki beint úr aukaspyrnu og Robert Lewandowski skoraði gott skallamark á 45. mínútu. Agüero tók svo leikinn í sínar hendur með mörkunum tveimur undir lokin eins og sjá má hér fyrir neðan. Bayern var fyrir leikinn öruggt með efsta sæti riðilsins en City er nú búið að jafna CSKA Moskvu og Roma að stigum. Öll þrjú lið eru með fimm stig fyrir lokaumferðina og getur City tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum með sigri á Roma á útivelli þann 10. desember, ef CSKA mistekst að vinna Bayern á sama tíma.Mark Agüero úr vítaspyrnu og rauða spjaldið: Xabi Alonso jafnaði metin með marki beint úr aukaspyrnu: Robert Lewandowski kom Bayern yfir: Sergio Agüero jafnaði metin fyrir City á 85. mínútu: Dramatískt sigurmark Agüero í uppbótartíma:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjá meira