Handbolti

Þórey Rósa næstmarkahæst í tapi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þórey Rósa í eldlínunni með landsliðinu.
Þórey Rósa í eldlínunni með landsliðinu. Vísir/Stefán
Þórey Rósa Stefánsdóttir skoraði sjö mörk í jafnteflisleik Vipers Kristiansand gegn Oppsal í norsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Staðan var 11-11 í hálfleik og leikurinn var æsispennandi fram á síðustu mínútu. Lokatölur urðu 25-25.

Þórey Rósa skoraði eins og fyrr segir sjö mörk, en hún var næstmarkahæst.

Unnur Ómarsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Skrim gegn Storhamar Håndball í sömu deild. Skrim vann með þremur mörkum 28-25 eftir að hafa leitt 16-13 í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×