Barein og Furstadæmin biðja IHF um að fá að vera aftur með

Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmin voru bæði hætt við þátttöku á HM í handbolta vegna slæms pólitísks ástands í Persaflóanum og IHF ætlaði að tilkynna það á föstudaginn hvaða þjóðir fengju sætin. Handknattleikssamband Íslands gerði sér von um að vera önnur þeirra heppnu þjóða.
Nú er allt annað hljóð í handknattleikssamböndum Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmanna sem vilja nú endurheimta sæti sín í keppninni samkvæmt frétt á heimasíðu IHF.
Alþjóðahandboltasambandið mun samt sem áður tilkynna það á föstudaginn hvaða þjóðir munu skipa þessi tvö síðustu sæti í keppninni en eftir þessar fréttir bendir allt til þess að það verði Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmin sem höfðu unnið sér inn þátttökurétt í keppninni.
Tengdar fréttir

Bjóða tíu blaðamönnum frá hverri þjóð á HM í Katar
Alþjóðahandboltasambandið hefur sent út bréf til þeirra 24 þjóða sem keppa á HM í handbolta í Katar í janúar og ætlar að bjóða tíu blaðamönnum frá hverri þjóð á heimsmeistaramótið. Danska sambandið ætlar ekki að þiggja boðið.

Wilbek um sæti Íslands á HM í Katar: Yrði erfiðasti riðill allra tíma
Það eru ekki bara Ísland, Suður-Kórea, Ungverjaland og Serbía sem bíða spennt eftir ákvörðun Alþjóðahandboltasambandsins um hvaða þjóðir taka sæti Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmanna á HM í handbolta í Katar í janúar.

HSÍ ætlar að berjast fyrir farseðlinum til Katar
Möguleikar Íslands á að taka þátt á HM í Katar í janúar jukust mikið í gær þegar Barein ákvað að draga lið sitt úr keppni. Nýju reglurnar hjá IHF, sem urðu þess valdandi að Þjóðverjar fóru á HM en ekki Ísland, gætu á endanum orðið þess valdandi að Ísland

HSÍ er búið að hafa samband við IHF
Það er óvænt eitt opið sæti á HM og formaður HSÍ hringdi í IHF í dag og ítrekaði kröfu sína um að láta Ísland fá sæti á mótinu.

Ísland með á HM í handbolta í Katar eftir allt saman?
Íslenska handboltalandsliðið gæti verið á leiðinni á HM í Katar í janúar eftir allt saman vegna ástandsins við Persaflóann en svo gæti farið að bæði Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum yrði meinuð þátttaka á HM.

Barein ekki með á HM | Ákvörðun tekin 21. nóvember
Ísland gæti tekið þátt á HM í Katar eftir að Barein dró lið sitt úr keppni.

Formaður HSÍ: Möguleikar okkar hafa aukist | Eru Ungverjaland og Serbía framar en Ísland í röðinni?
Hringavitleysan í kringum HM í Katar heldur áfram, en ekki er loku fyrir það skotið að Ísland verði með eftir allt saman.

Verða Barein og SAF með á HM í Katar eftir allt saman?
Það virðist ekki vera loku fyrir það skotið að þjóðirnar taki sæti sín á HM eftir allt saman.

Fer Ísland í riðil með Guðmundi og Degi?
Fari svo að íslenska landsliðið taki sæti Barein á HM í handbolta í Katar þá gætum við fengið skemmtilegt einvígi þriggja íslenskra þjálfara í riðlakeppninni.

Furstadæmin draga lið sitt úr keppni | Líklegt að Ísland verði með í Katar
Dramatíkin í kringum HM í handbolta í Katar á næsta ári virðist engan enda ætla að taka, en franska fréttastofan AFP hefur greint að Sameinuðu arabísku furstadæmin hafi dregið lið sitt úr keppni, sem þýðir væntanlega að möguleikar Íslendinga að taka sæti á HM hefur aukist til mikilla muna.

Úrskurðarnefndin dæmdi IHF í hag
Sjónarmið Alþjóða handknattleikssambandsins sögð rökrétt og byggð á efnisreglum.