NBA í nótt | Durant og Westbrook í stuði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2014 10:51 Russell Westbrook mátti vera ánægður með eigin frammistöðu í nótt. Vísir/Getty
Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt, allt oddaleikir.Kevin Durant og félagar í Oklahoma City Thunder unnu 11 stiga sigur, 120-109, á Memphis Grizzlies á heimavelli. Durant var stigahæstur sinna manna með 33 stig, en hann tók auk þess átta fráköst. Russell Westbrook átti einnig frábæran leik og skilaði þrefaldri tvennu; 27 stigum, tíu fráköstum og 16 stoðsendingum. Spánverjinn Marc Gasol skoraði mest fyrir Memphis, eða 24 stig. Mike Conley kom næstur með 20 stig, fimm fráköst og níu stoðsendingar. Andstæðingar Oklahoma í undanúrslitum Vesturdeildarinnar verða Los Angeles Clippers sem lögðu Golden State Warriors í nótt, 126-121.Blake Griffin skoraði 24 stig fyrir Clippers og gaf sex stoðsendingar. Chris Paul og Jamal Crawford skoruðu 22 stig hvor, en sá fyrrnefndi gaf einnig 14 stoðsendingar. Þá skoraði DeAndre Jordan 15 stig og reif niður 18 fráköst.Stephen Curry var atkvæðamestur í liði Golden State, en hann skoraði 33 stig og gaf níu stoðsendingar. Draymond Green kom næstur með 24 stig og sjö fráköst. Í Austurdeildinni sigraði Indiana Pacers Atlanta Hawks, 92-80, en þetta er í fyrsta sinn í sögu Indiana sem liðið kemur til baka eftir að hafa lent 3-2 undir í úrslitakeppni.Paul George fór fyrir Indiana-liðinu, en hann skoraði 30 stig og tók 11 fráköst. Lance Stephensen var sömuleiðis sterkur með 19 stig, 14 fráköst og fimm stoðsendingar.Kyle Korver var stigahæstur Atlanta-manna með 19 stig. Þá skoraði Paul Millsap 15 stig og tók 17 fráköst. Indiana mætir Washington Wizards í undanúrslitum Austurdeildarinnar.Úrslitin í nótt: Oklahoma City Thunder 120-109 Memphis Grizzlies Los Angeles Clippers 126-121 Golden State Warriors Indiana Pacers 92-80 Atlanta Hawks
NBA Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira