Markvörður Chelsea gæti staðið í vegi fyrir Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2014 09:15 Thibaut Courtois og Cristiano Ronaldo eftir leik Madridar-liðanna á dögunum. Vísir/Getty
Enska liðið Chelsea á möguleika á því að mæta sjö liðum frá fjórum löndum þegar dregið verður í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í dag. Einn af mögulegum mótherjum Chelsea-liðsins er spænska liðið Atletico Madrid en einn af bestu mönnum liðsins er belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois. Það vita kannski ekki allir að Thibaut Courtois er í raun leikmaður Chelsea því félagið keypti hann frá belgíska félaginu í júlí 2011 og skrifaði hann þá undir fimm ára samning. Courtois hefur aldrei spilað fyrir Chelsea því félagið er í frábærum málum með Tékkann Petr Cech sem aðalmarkvörður liðsins. Courtois hefur því verið í láni hjá Atlético Madrid undanfarin þrjú tímabil enda hefur hann ekki áhuga á að sitja á bekknum á Brúnni. Daily Mail segir frá því í morgun að Chelsea hafi gefið Thibaut Courtois leyfi til að spila ef Atlético Madrid og Chelsea dragast saman í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í dag. Courtois hefur áður spilað með Atlético Madrid á móti Chelsea en hann stóð í marki liðsins þegar Atlético Madrid vann 4-1 sigur á Chelsea Súper-bikar UEFA árið 2012 en það er árlegur leikur milli Evrópumeistara síðasta árs.Vísir/Getty
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira