Gróttukonur unnu Val á marki á lokasekúndunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2014 18:03 Íris Björk Símonardóttir var öflug í markinu hjá Gróttu. Vísir/Vilhelm
Gróttukonur unnu glæsilegan eins marks sigur á Gróttu, 23-22, í 15. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld. Gróttuliðið lék frábærlega í fyrri hálfleik sem liðið vann 15-12 og hélt síðan út á spennandi lokamínútum. Grótta skoraði sigurmarkið rétt áður en leiktíminn rann út. Það var leikstjórnandinn Eva Björk Davíðsdóttir sem var hetja Gróttu-liðsins þegar hún skoraði með lúmsku skoti rétt fyrir leikslok. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Gróttukonur stríða Valsliðinu en Gróttuliðið var óheppið að vinna ekki fyrri leikinn í Vodafone-höllinni en liðin gerðu þá jafntefli í byrjun október. Þetta var aðeins annað tap Valsliðsins á tímabilinu og þau hafa bæði komið á útivelli og lokatölurnar voru 23-22 í bæði skiptin en hitt tapið kom á móti ÍBV í Eyjum fyrir tveimur vikum. Gróttuliðið náði þarna að bæta fyrir jafntefli við KA/Þór á Akureyri á dögunum en liðið hefur sýnt á sér ýmsar hliðar í vetur, bæði góðar og slæmar. Þær sýndu í þessum leik að þær geta blandað sér í baráttuna í vetur.Grótta - Valur 23-22 (15-12)Mörk Gróttu: Anett Köbli 6, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 5, Unnur Ómarsdóttir 4, Eva Björk Davíðsdóttir 3, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 3, Lene Burmo 2.Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 7, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 3, Aðalheiður Hreinsdóttir 2, Sigurlaug Rúnarsdóttir 2, Rebekka Rut Skúladóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira