Skoðun

Cameron fer íslensku leiðina

Bolli Héðinsson skrifar
David Cameron, forsætisráðherra Breta, hyggst nú fara sömu leið og Íslendingar og óska eftir samningaviðræðum við Evrópusambandið. Að samningaviðræðunum loknum hyggst hann síðan bera samninginn undir þjóðaratkvæði. Þetta hlýtur að teljast hin rökrétta leið, þ.e. að vita fyrst hverju hægt er að ná fram í samningaviðræðunum áður en atkvæðin eru greidd.

Ólíkt því sem haldið er fram á Íslandi þá telur Cameron að heilmikið sé hægt að semja um við ESB. Þetta er leið sem Bretar hafa farið áður. Þeir sömdu á níunda áratugnum um hinn svokallaða „breska afslátt“ af framlögum sínum til ESB. Þess afsláttar njóta þeir enn þar sem þeir náðu fram varanlegri undanþágu frá framlögum sínum til ESB. Þegar ákvarðanir um nýjustu fjárhagsáætlun ESB var tekin nú á dögunum náðu Danir einnig að semja um verulegan afslátt frá fyrri framlögum sínum til ESB.

Semja fyrst við ESB

Aðeins hér á landi heyrast raddir um að greiða eigi þjóðaratkvæði um eitthvað sem enginn veit hvað er. Hér á landi dettur mönnum í hug að betra sé að greiða atkvæði áður en samningur liggur fyrir, áður en vitað er hvað hægt sé að greiða atkvæði um. Aðeins á Íslandi er haldið í þá umræðuhefð að deila um það sem hægt er að staðreyna. Af árangursleysi þeirrar aðferðar ætti þjóðin hins vegar að hafa nægjanlega átakanlega og bitra reynslu. Að hætta aðildarviðræðum í miðjum klíðum er aðeins fallið til að halda lífi í deilum um það sem við fáum ekki botn í nema ljúka aðildarviðræðunum. Það er ekki síður hagsmunamál þeirra sem andsnúnir eru ESB en þeirra sem því eru hlynntir.

Hér á landi virðast heilu stjórnmálaflokkarnir hverfast um það eitt að vera á móti ESB án þess að vilja vita hvað í aðildinni felst eða yfirleitt að vilja vita hvort þetta gæti reynst heppileg leið fyrir Íslendinga að fara líkt og allar nágrannaþjóðir okkar hafa gert, að Norðmönnum einum undanskildum. Sömu stjórnmálaflokkar koma sér einnig hjá því að setja fram hugmyndir um hvernig þeir sjá framtíð Íslands best borgið og gefa aðeins til kynna það sem þeir vilja ekki í stað þess að segja til um hvað þeir vilja gera.

Alvarlegustu afleiðingar kreppunnar hér á landi urðu vegna stökkbreytinga á lánum heimila og fyrirtækja. Á meðan rataði ekki eitt einasta fyrirtæki eða heimili í neinu nágrannalanda okkar í vandræði vegna hækkunar lána. Hækkun lána í hruninu var séríslenskt fyrirbrigði sem rekja má til íslensku krónunnar. Þessar alvarlegu afleiðingar, einar og sér, ættu að nægja okkur sem áminning um það hvað það kostar okkur að halda úti eigin gjaldmiðli.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×