Reynslan hafði betur | Golden State úr leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. maí 2013 09:00 David Lee, leikmaður Golden State, í baráttunni í nótt.
San Antonio er komið áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Golden State í nótt, 94-82. Þar með vann San Antonio rimmu liðanna, 4-2, og mætir Memphis í úrslitum vestursins. Tim Duncan var með nítján stig fyrir San Antonio og Kawhi Leonard sextán auk þess að taka tíu fráköst. Tony Parker byrjaði illa en skoraði tíu af þrettán stigum sínum í fjórða leikhluta. Stephen Curry, sem hefur verið að glíma við ökklameiðsli, hefur ekki verið að skjóta vel í síðustu leikjum en hann hitti úr tíu af 25 skotum sínum í nótt og skoraði 22 stig. Jarrett Jack skoraði fimmtán. Hið margreynda lið San Antonio hafði í raun betur á flestum sviðum í nótt en ljóst er að ungt lið Golden State á framtíðina fyrir sér. Auk meiðsla Curry var nýliðinn Harrison Barnes tæpur í leiknum í nótt sem hafði sitt að segja. Tony Parker segir að liðið sé ólmt í að komast aftur í lokaúrslitin, þar sem liðið var síðast árið 2007. „Það vilja allir láta reyna á þetta einu sinni enn,“ sagði hann. Carmelo Anthony skoraði 28 stig í nótt.Mynd/AP Miami Heat þurfa enn að bíða eftir andstæðingi sínum í úrslitum Austurdeildarinnar þar sem að staðan í rimmu Indiana og New York er 3-2 fyrir Indiana, eftir sigur New York í leik liðanna í nótt. New York vann tíu stiga sigur, 85-75, þar sem að Carmelo Anthony skoraði 28 stig. Næsti leikur fer fram í Indiana og þar geta heimamenn tryggt sér farseðilinn í úrslitarimmu austursins gegn Miami. Paul George var með 23 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar fyrir Indiana sem saknaði leikstjórnandans George Hill. Hann var frá vegna heilahristings en án hans tapaði liðið boltanum nítján sinnum í leiknum.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Fótbolti Á sársaukafullar minningar af HM Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira