Handbolti

Guðjón Valur í liði vikunnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Kiel.
Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Kiel. Nordic Photos / Getty Images
Guðjón Valur Sigurðsson fór á kostum þegar að lið hans, Kiel, vann ungverska liðið Veszprem í Meistaradeild Evrópu um helgina.

Guðjón Valur skoraði sjö mörk í leiknum og var valinn í lið umferðarinnar í Meistaradeildinni. Kiel vann yfirburðasigur, 32-21, en Veszprem hafði unnið alla átta leiki sína í riðlinum fram að þessum leik.

Veszprem er þó enn með tveggja stiga forystu á toppi B-riðils en ein umferð er eftir í riðlinum. Kiel mætir Constanta á útivelli en Veszprem tekur á móti Atletico Madrid.

Liðið:

Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson

Vinstri skytta: Michal Juercki, Kielce

Leikstjórnandi: Rasmus Lauge Schmidt, Bjerringbro/Silkeborg

Hægri skytta: Holger Glandorf, Flensburg

Hægra horn: Cedric Paty, Chambery

Línumaður: Igor Vori, Hamburg

Markvörður: Roland Mikler, Pick Szeged




Fleiri fréttir

Sjá meira


×