Kupchak: Leikmönnum Lakers að kenna en ekki þjálfaranum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2013 18:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Mitch Kupchak, framkvæmdastjóri Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta, kennir leikmönnum um slæmt gengi liðsins og telur ástæðuna ekki liggja á þjálfaranum sem hann valdi yfir Phil Jackson. Lakers hefur aðeins unnið 2 af 11 leikjum sínum í janúar. Mike D'Antoni tók óvænt við Lakers í nóvember en þá bjuggust allir við að Phil Jackson, sigursælasti þjálfari NBA-deildarinnar, væri að fara að taka aftur við liðinu. Jackson var til í slaginn en Mitch Kupchak fór aðra leið. „Það er enginn vafi á því að við höfum fulla trú á Mike (D'Antoni) þjálfara," sagði Mitch Kupchak í viðtali við ESPN. Tímabilið er hálfnað og Los Angeles Lakers hefur aðeins unnið 17 af 41 leik og er langt frá sæti úrslitakeppninni eins og staðan er í dag. Slakt gengi að undanförnu (9 töp í síðustu 11 leikjum) eru ekki að auka líkurnar á því að liðið nái hreinlega inn í úrslitakeppnina. Liðið var með 50 prósent sigurhlutfall þegar nýtt ár rann í garð og endurheimti þá Steve Nash úr meiðslum. „Við erum búnir að grafa okkur holu og það er pirrandi staða fyrir alla. Það er að sjálfsögðu ekki eitthvað sem einhver bjóst við. Ég hef áhyggjur af viðleitni leikmanna liðsins. Ég vil sjá leikmenn leggja sig meira fram inn á vellinum," sagði Mitch Kupchak og benti á það að Lebron James hefði skutlað sér á eftir bolta í leik Miami og Lakers á dögunum. „Þegar skotin klikka og hlutirnir eru ekki að ganga upp inn á vellinum þá er það eina sem þú getur stjórnað er hversu mikið þú leggur þig fram. Barátta um lausa bolta, hlaup upp völlinn, varnarleikur og sóknarfráköst. Leikmenn verða að taka sig á í þessum þáttum leiksins," sagði Kupchak.
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira