Mömmurnar elda ofan í stelpurnar fyrir leik Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. október 2012 07:30 Stella er brött fyrir leikina um helgina. fréttablaðið/vilhelm
Fram-stelpur eru brattar fyrir leikina gegn Tertnes í Evrópukeppni félagsliða um helgina en þeir fara fram í dag og á morgun klukkan 16.00. Báðir leikir fara fram í Safamýrinni. „Þetta er mjög gott lið sem við erum að mæta og við vitum að við þurfum að spila vel til að eiga möguleika. Við höfum séð myndbönd af leik þeirra og ég tel okkar eiga möguleika í þessum leikjum. Ef við fáum góðan stuðning frá okkar fólki þá held ég að við eigum enn meiri möguleika. Stefnan er að komast áfram," sagði stórskytta Fram-liðsins, Stella Sigurðardóttir. Fram og Valur hafa verið í sérflokki í íslenskum kvennahandbolta undanfarin ár og því ekki mikið um erfiða leiki hjá þeim. „Þar sem við fáum ekki oft erfiða leiki er þeim mun skemmtilegra að spila í Evrópukeppninni. Okkar lið er komið með fína Evrópureynslu og þetta eru skemmtilegustu leikirnir fyrir okkur." Stella segir að það sé öðruvísi bragur yfir öllu í Evrópuleikjum og liðið þjappi sér betur saman." „Við gerum margt saman. Förum út að borða saman og svo munu mömmurnar elda ofan í okkur fyrir leik upp í Fram-heimili. Það er ekki verra að fá mömmumat fyrir leiki," sagði Stella létt en stelpurnar hafa safnað peningum fyrir þáttökunni í keppninni með því að selja gulrætur, flatkökur og annað hefðbundið.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira