Snorri Steinn: Þetta var þungt högg í andlitið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. ágúst 2012 08:00 Snorri Steinn er enn að jafna sig eftir svekkelsið gegn Ungverjum á Ólympíuleikunum og þarf þess utan að leita sér að nýrri vinnu.fréttablaðið/valli „
Það er ekkert mikið að frétta sem stendur en öll hjól eru eðlilega í fullum gangi. Ég er að vega og meta stöðuna. Það þarf að huga að mörgu fyrir framtíðina. Þetta er engin óskastaða þegar tímabilin eru að hefjast úti um alla Evrópu," sagði Snorri Steinn Guðjónsson en hann er atvinnulaus um þessar mundir. Hann er þess utan tveggja barna faðir í sambúð og því þarf að vanda valið fyrir framtíðarstað fjölskyldunnar sem hefur unað sér vel í Danmörku. „Auðvitað vil ég að þetta klárist einn, tveir og þrír en það er ekki hægt. Við gætum vel hugsað okkur að vera áfram í Danmörku. Konan mín er hálfur Dani og á fjölskyldu hérna, strákurinn okkar er byrjaður í leikskóla þannig að við erum mjög opin fyrir því að vera hér áfram. Ég verð samt að skoða allt og hef ekkert annað val enda atvinnulaus." Flest félög eru búin að setja saman lið fyrir tímabilið samkvæmt þeirra fjárhagsáætlun. Við gjaldþrot AG urðu aftur á móti margir heimsklassaleikmenn atvinnulausir og félög sem vilja fá þá þurfa eitthvað að endurskipuleggja sig geti þau það á annað borð. Íslendingarnir hjá AG – Snorri, Arnór Atlason og Ólafur Stefánsson – vildu lítið tjá sig um gjaldþrotið meðan á Ólympíuleikunum stóð en Snorri neitar því ekki að fréttirnar hafi verið mikið áfall. „Þetta var þungt högg í andlitið. Það var búinn að vera mikill órói í kringum félagið og Jesper Nielsen eigandann en við sáum þetta ekki fyrir. Venjulega er lengri aðdragandi að gjaldþrotum. Menn lækka í launum, leikmenn eru seldir og svo framvegis," sagði Snorri. Leikmenn höfðu mikinn áhuga á því að halda rekstrinum gangandi í samstarfi við styrktaraðila. Þær fyrirætlanir fóru út um þúfur er Nielsen ákvað að keyra félagið í þrot. „Það voru allir styrktaraðilarnir til í að halda þessu gangandi en Jesper ákvað að loka þessu á sínum forsendum. Strákarnir í liðinu sem voru ekki á Ólympíuleikunum fóru á stúfana og voru komnir með fjármagn til þess að reka alvöru handboltalið. Það hefði vel verið hægt að reka þetta handboltalið áfram þó svo með tíð og tíma hefði þurft að minnka sirkusinn. Það þarf ekki alltaf að leigja Parken og flytja úrslitaleiki til Jótlands. Það er stundum bara hægt að spila handbolta," sagði Snorri en leikmenn AG í Danmörku voru á miðri æfingu er félagið var sett í þrot. Svo hratt gerðust hlutirnir að lokað var fyrir síma starfsmanna samdægurs og annað í þeim dúr. Miðjumaðurinn sterki segir að tíminn hjá AG hafi verið einstakur og hans besti á ferlinum. Hann hafi notið hverrar mínútu. „Allt sem viðkom hópnum var einstakt. Stemningin og mórallinn var ótrúlegur og ekki í líkingu við annað sem ég hef kynnst. Svo skemmdi ekki fyrir hvað við vorum góðir. Mesta eftirsjáin er í félögunum og stemningunni. Þetta var svakalega skemmtilegur tími. Þetta er líka sorglegt fyrir danskan handbolta sem missir mikið." Snorri segist reyna að líta á stöðuna jákvæðum augum. „Þessi reynsla og tími verður aldrei tekinn frá okkur. Maður á svo örugglega eftir að hlæja að þessu gjaldþroti þegar maður er orðinn fimmtugur þó svo maður geri það ekki núna." Erfitt að ná vítakastinu úr hausnumÍslenska landsliðið stendur á ákveðnum tímamótum um þessar mundir. Ólafur Stefánsson er líklega hættur og heyrst hefur að Guðjón Valur og jafnvel Snorri séu að hugsa sinn gang varðandi landsliðið. „Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki leitt hugann neitt að landsliðinu eftir Ólympíuleikana fyrir utan vítakastið. Það fer ekki svo auðveldlega úr hausnum á mér því miður," sagði Snorri en númer eitt hjá honum núna er að finna sér nýjan samastað. „Ég er samt bara þrítugur og því lítið sem ætti að koma í veg fyrir að ég geti spilað með landsliðinu. Ég á nóg eftir."
Handbolti Mest lesið Hafa ekki heyrt frá Hearts: „Kom mér jafn mikið á óvart og þér“ Íslenski boltinn Þarf vernd lögreglu vegna reiði Rómverja Fótbolti Nasistaborði í Magdeburg til rannsóknar Fótbolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn „Algjör synd að við fengum ekkert út úr þessum leik“ Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn Arnar sagður líklegur til að taka við í Skotlandi Íslenski boltinn Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Handbolti Sjáðu ótrúlega sjö mínútna þrennu Smith og tvennu Nadíu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn