Leik lokið: Fram - ÍBV 40-18 | Fram mætir Val í úrslitaleiknum Benedikt Grétarsson í Strandgötu skrifar 27. desember 2012 19:30 Mynd/Vilhelm
Framkonur áttu ekki í miklum vandræðum með að vinna ÍBV í kvöld og tryggja sér sæti í úrslitaleik Flugfélags Íslands deildarbikarsins en Fram mætir Val í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni á morgun. Fram vann ÍBV með 22 marka mun, 40-18, og það var eiginlega aldrei spurning um hvernig þessi leikur færi. Fyrr í kvöld þurftu Valskonur tvær framlengingar og vítakeppni til þess að slá út Stjörnuna en það var aldrei spenna í seinni leiknum. Ásta Birna Gunnarsdóttir skoraði níu mörk fyrir Fram í kvöld og þær Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir og Stella Sigurðardóttir voru með sex mörk hvor. Simona Vintila var atkvæðamest hjá ÍBV með átta mörk. Fram breytti stöðunni úr 7-5 í 12-5 á þriggja mínútna kafla í fyrri hálfleik og var síðan 21-14 yfir í hálfleik. Framliðið skoraði tólf fyrstu mörk seinni hálfleiks og ÍBV skoraði ekki sitt fyrsta mark í hálfleiknum fyrr en eftir sextán mínútur. Framliðið var þar með komið í 33-14 og gat hvílt lykilmenn á síðustu fjórtán mínútunum og safnað kröftum fyrir leikinn á móti Val á morgun. Framkonur skoruðu alls sautján hraðaupphlaupsmörk í þessum leik á móti ÍBV í kvöld. Leikur Vals og Fram hefst klukkan 17.30 í Laugardalshöll á morgun en þetta verður þriðja árið í röð þar sem þessi lið mætast í úrslitaleik Flugfélags Íslands deildarbikarsins. Valur hefur haft betur undanfarin tvö ár.
Olís-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira