Áttundi stórsigur Valskvenna í röð - myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. nóvember 2012 21:13 Mynd/Stefán
Valskonur eru aftur komnar á topp N1 deildar kvenna í handbolta eftir 23 marka sigur á HK, 44-21, í Digranesi í kvöld en leikurinn var færður til vegna þátttöku Valsliðsins í Evrópukeppninni um síðustu helgi. Valsliðið er þar með búið að vinna alla átta deildarleiki sína á tímabilinu og ennfremur þá alla með ellefu mörkum eða meira en þetta var þó stærsti sigur liðsins á tímabilinu. Valur var í þriðja sætinu fyrir leikinn á eftir Fram og ÍBV enda búið að spila færri leiki en liðin tvö fyrir ofan. Liðið er nú með jafnmörg stig og Fram á toppnum en betri markatala skilar liðinu í efsta sætið. HK er í fimmta sæti deildarinnar og var búið að vinna fimm af fyrstu átta leikjum sínum í vetur fyrir þennan leik í kvöld þar af fjóra af fimm leikjum sínum í Digranesinu. Valsliðið hafði mikla yfirburði í leiknum en liðið var með níu marka forskot í hálfleik, 19-10. Liðið bætti í seinni hálfleiknum sem liðið vann með fjórtán marka mun, 25-11.HK - Valur 21-44 (10-19)Mörk HK: Heiðrún Björk Helgadóttir 6, Guðrún Erla Bjarnadóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 3, Sigríður Hauksdóttir 2, Gerður Arinbjarnar 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Emma Havin Sardarsdóttir 1, Tinna Rögnvaldsdóttir 1, Sóley Ívarsdóttir 1.Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 9, Íris Ásta Pétursdóttir 7, Aðalheiður Hreinsdóttir 6, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 6, Þorgerður Anna Atladóttir 5, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 4, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3, Kolbrún Franklín 2, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira