Umfjöllun: Rúmenía - Ísland 30-37 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2012 13:30
Íslenska handboltalandsliðið er með fullt hús í sínum riðli eftir nokkuð öruggan sjö marka sigur í Rúmeníu í dag, 37-30. Íslenska liðið var í vandræðum framan af leik en lék mun betur í seinni hálfleiknum og sigur liðsins var aldrei í hættu í lokin. Rúmenar skoruðu að því virtist að vild í fyrri hálfleiknum og alls 18 mörk fyrir hlé en strákarnir tóku sig á og bættu varnarleikinn í seinni hálfleiknum. Rúmenar voru mest þremur mörkum yfir en það var ljóst allan tímann að íslensku strákarnir áttu mikið inni. Íslenska liðið sýndi styrk sinn á síðustu tólf mínútunum sem liðið vann með sex marka mun, 10-4, og breytti stöðunni úr 27-26 í 37-30. Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska liðsins, skoraði 11 mörk annan leikinn í röð og fór fyrir markaskoruninni ásamt Ásgeiri Erni Hallgrímssyni. Aron Rafn Eðvarðsson gekk illa að stoppa mörg þrumuskot Rúmena framan af leik en varði ágætlega allan tímann og alls 19 skot. Þórir Ólafsson átti góða innkomu í seinni hálfleik alveg eins og Kári Kristjánsson sem var með 3 mörk og 1 fiskað víti á síðustu átta mínútunum. Aron Pálmarsson gat ekkert fyrir hlé en það gekk betur í seinni hálfleiknum og ekki síst þegar Ólafur Guðmundsson fór að spila fyrir hann vörnina en Ólafur lék vel í vörninni í dag. Hér fyrir neðan má sjá tölfræði og gang leiksins en hann var í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira