NBA: Lakers tapaði og Miami vann Boston Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2012 09:00 Dwyane Wade var frábær í nótt. Mynd/Nordic Photos/Getty
NBA-deildin í körfubolta hófst í nótt með þremur leikjum. NBA-meistarar Miami Heat byrjuðu á sigri á Boston Celtics en nýju stjörnurnar í Los Angeles Lakers töpuðu aftur á móti á móti vængbrotnu liði Dallas Mavericks.Los Angeles Lakers tapaði öllum átta leikjum sínum á undirbúningstímabilinu og ekki byrjar deildarkeppnin betur því liðið tapaði 91-99 á heimavelli á móti Dallas Mavericks í nótt. Kobe Bryant hefur verið að glíma við meiðsli en var með og skilaði 22 stigum en Spánverjinn Pau Gasol var atkvæðamestur með 23 stig, 13 fráköst og 6 stoðsendingar.Dwight Howard og Steve Nash léku sinn fyrsta deildarleik með Lakers, Howard skoraði 19 stig en fékk líka 6 villur og Nash var með 7 stig og 4 stoðsendingar. Howard klikkaði líka á 11 af 14 vítum sínum. Dallas lék án Dirk Nowitzki og þá hefur liðið misst marga leikmenn frá því að þeir urðu NBA-meistarar 2011. Það kom ekki að sök því margir voru að skila til liðsins. Sex leikmenn skoruðu yfir tíu stig en atkvæðamestir voru Darren Collison með 17 stig og Brandan Wright með 14 stig.Dwyane Wade skoraði 29 stig, Lebron James var með 26 stig og 10 fráköst á 29 mínútum og Ray Allen kom með 19 stig af bekknum þegar Miami Heat vann 120-107 sigur á Boston Celtics. James spilaði lítið í fjórða leikhlutunum en líkt og í úrslitakeppninni þá glímdi hann við krampa í fæti. Paul Pierce skoraði 23 stig fyrir Boston og Rajon Rondo var með 20 stig og 13 stoðsendingar.Cleveland Cavaliers vann fyrsta sigur tímabilsins þegar liðið vann 94-84 heimasigur á Washington Wizards. Anderson Varejao var með 9 stig, 23 fráköst og 9 stoðsendingar og nýliði ársins í fyrra, Kyrie Irving, var með 29 stig. Liðið fékk líka 17 stig frá nýliðanum Dion Waiters. Jordan Crawford skoraði mest hjá Washington eða 11 stig en liðið lék án John Wall, Nene og Kevin Seraphin.
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira