Ray Allen mætir Boston Celtics í fyrsta leik NBA-tímabilsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2012 13:30 Ray Allen með búning Miami Heat. Mynd/Nordic Photos/Getty
NBA-meistararnir í Miami Heat mun hefja titilvörn sína í NBA-deildinni á móti erkifjendum sínum í Boston Celtics en NBA -deildin er búin að gefa út leikjaniðurröðunina fyrir næsta tímabil sem hefst 30. október næstkomandi. Þetta verður örugglega skrýtið kvöld fyrir Ray Allen sem hefur leikið með Boston Celtics undanfarin ár en ákvað að semja við Miami Heat í sumar. Hann verður einn af fáum leikmönnum Miami sem munu ekki taka þátt í titilhátíð sem er alltaf í kringum fyrsta leik meistaranna á nýju tímabili. Leikur Miami Heat og Boston Celtics verður einn þriggja leikja á opnunarkvöldi deildarinnar en í hinum leikjunum mætast Washington og Cleveland annarsvegar og Dallas og Los Angeles Lakers hinsvegar. Steve Nash mun þar spila sinn fyrsta leik við hlið Kobe Bryant. Daginn eftir verður síðan sannkallaður New York slagur þegar Brooklyn Nets tekur á móti New York Knicks í nýju höllinni sinni; Brooklyn's Barclays Center. Oklahoma City Thunder byrjar sitt tímabil sama kvöld þegar liðið mætir San Antonio Spurs. Eins og vanalega verða margir stórleikir á jóladag en þar vekur mesta athygli heimsókn Oklahoma City Thunder til Miami. Los Angeles liðin mun líka bæði spila heimaleik 25. desember en þau spila eins og kunnugt er bæði í Staples Center. Lakers tekur fyrst á móti New York Knicks og fimm tímum síðar mætir Clippers-liðið Denver Nuggets.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Íslenski boltinn Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Fótbolti „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Enski boltinn Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Fleiri fréttir Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Sjá meira