Aðeins sá fimmti sem tryggir sér titilinn með þrefaldri tvennu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2012 17:45 LeBron James fagnar í nótt. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James komst í fámennan hóp í nótt þegar hann hjálpaði Miami Heat að vinna NBA-meistaratitilinn í körfubolta eftir 121-106 sigur á Oklahoma City Thunder í fimmta leik liðanna í úrslitaeinvíginu. James átti enn einn stórleikinn í einvíginu og endaði hann með þrefalda tvennu; 26 stig, 13 stoðsendingar og 11 fráköst. Aðeins fjórir aðrir leikmenn í sögu NBA-deildarinnar hafa tryggt sér titilinn með þrefaldri tvennu. Síðastur til að afreka slíkt á undan James var Tim Duncan með San Antonio Spurs á móti New Jersey Nets í úrslitunum 2003. Duncan var reyndar nálægt fjórfaldri tvennu í þeim leik því hann var þá með 21 stig, 20 fráköst, 10 stoðsendingar og 8 varin skot. Hinir sem hafa náð þessu eru James Worthy, Larry Bird og Magic Johnson tvisvar sinnum. James Worthy var með 36 stig, 16 fráköst og 10 stoðsendingar í sigri Lakers á Detroit Pistons 1988 en Larry Bird var með 20 stig, 11 fráköst og 12 stoðsendingar í sigri Boston Celtics á Houston Rockets árið 1986. Magic Johnson náði þessu með Los Angeles Lakers bæði árin 1982 og 1985. Magic var með 13 stig, 13 fráköst og 13 stoðsendingar í sigri á Philadelphia 76ers 1982 og þremur árum síðar var hann með 14 stig, 10 fráköst og 14 stoðsendingar í sigri á Boston Celtics.
NBA Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira