Íslenski boltinn

Umfjöllun: Eyjakonur bundu enda á sigurgöngu Þór/KA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
ÍBV vann 4-1 sigur á Þór/KA í toppleik 7. umferðar Pepsi-deildar kvenna norðan heiða í dag. Þór/KA var ósigrað í sumar en sá aldrei til sólar gegn Eyjakonum sem léku við hvern sinn fingur.

Leikur liðanna var jafn framan af en Eyjakonur þó beittari í sóknaraðgerðum sínum. Ein slík á 21. mínútu var á þá leið að Shaneka Gordon geystist upp hægri kantinn, sendi fyrir á nærsvæðið þangað sem Kristín Erna Sigurlásdóttir kláraði færið vel.

Fjórða mark Kristínar Ernu í sumar og Shaneka Gordon nýtti hraða sinn vel. Gordon var sjálf á ferðinni tíu mínútum síðar. Þá fékk hún frábæra sendingu inn fyrir vörnina frá Dönku Podovac. Gordon var yfirveguð þrátt fyrir að Chantel Jones kæmi askvaðandi á móti henni og renndi boltanum í fjærhornið.

Bæði lið fengu færi til að bæta við mörkum. Bryndís Lára þurfti að taka á honum stóra sínum þegar hún varði langskot Bandaríkjakonunnar Tahnai Annis í þverslána. Bryndís Lára var öryggið uppmálað í marki Eyjakvenna í leiknum. Bæði greip hún vel inní auk þess að verja vel þegar á þurfti.

Allt stefndi í tveggja marka forystu Eyjakvenna í leikhléi þegar Serbarnir í liði Eyjakvenna buðu upp á þriðja markið. Danka vippaði boltanum þá inn fyrir á Vesnu Smiljkovic sem tók boltann á lofti. Skotið var arfaslakt en fann sér þó leið á lúsarhraða neðst í markhornið. Þriggja marka forysta raunin og segja má að björninn hafi verið unninn.

Kayla Grimsley minnkaði muninn fyrir heimakonur með ágætu marki á 56. mínútu. Þá fékk hún langa sendingu inn fyrir vörnina. Virtist spila sig út í ógöngur áður en hún sneri af sér varnarmann og skoraði. Laglega mark og gaf Þór/KA vonarneista. Liðið skapaði sér nokkur hálffæri í kjölfarið en Bryndís var sem fyrr segir öryggið uppmálað.

Varamaðurinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir gerði út um vonir heimakvenna á 82. mínútu. Kristín Erna fékk þá frábæra sendingu inn fyrir vörnina. Kristín lék út að endalínu og lagði boltann út á Berglindi sem hamraði boltann í þaknetið, leik lokið.

Þór/KA saknaði framherja síns Katrínar Ásbjörnsdóttur sárlega í leiknum. Hin 15 ára Lilý Rut Hlynsdóttir byrjaði sinn fyrsta leik í framlínu Akureyrarliðsins og stóð sig ágætlega en skarð Katrínar er vandfyllt. Katrín spilaði síðustu 25 mínúturnar og ljóst að liðið má erfiðlega við fjarveru hennar í sóknarleiknum.

Fjarvera Katrínar útskýrir ekki þó mörkin fjögur sem liðið fékk á sig. Fyrir leikinn hafði Þór/KA fengið á sig þrjú mörk í sex leikjum. Eftir leikinn í dag eru mörkin orðin sjö. Eitthvað fyrir Jóhann Kristinn þjálfara norðankvenna að hugsa um.

Ljóst er að Eyjaliðið er til alls líklegt ef marka má leik þeirra í dag. Lið sem getur leyft sér að geyma Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur á bekknum er nautsterkt sóknarlega. Með Vesnu og Shaneku Gordon á köntunum, Dönku Podovac í hugmyndavinnunni á miðjunni og Kristínu Ernu fremsta verða allar varnir landsins í vandræðum með Eyjakonur.

Ekki má gleyma því að minnast á framgöngu hægri bakvarðarins Elísu Viðarsdóttur, fyrirliða ÍBV, í leiknum. Elísa stóð vaktina gagnvart Söndru Maríu Jessen sérstaklega vel og markahæsti leikmaður mótsins, fyrir þessa umferð, var lengst af í gjörgæslu.

Eyjakonur hafa skorað flest mörk allra í deildinni eða 22 og verður gaman að fylgjast með þeim í næstu umferð þegar Íslandsmeistarar Stjörnunnar koma í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×