Íslenski boltinn

Dramatískur Blikasigur eftir vítaspyrnukeppni í Eyjum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Blikastúlkur höfðu ástæðu til þess að fagna í Eyjum.
Blikastúlkur höfðu ástæðu til þess að fagna í Eyjum. Mynd / Ernir
Breiðablik er komið í átta liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu eftir sigur á Eyjakonum í vítaspyrnukeppni. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 3-3 og 4-4 að lokinni framlengingu.

Þetta var fyrsti sigur Blika í bikarkeppninni í þrjú ár og var hann í meira lagi dramatískur. Auk markaveislunnar fór rauða spjaldið á loft í þrígang en gestirnir úr Kópavogi spiluðu manni fleiri stærstan hluta framlengingarinnar.

Gestirnir úr Kópavogi komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn þegar Ella Dís Thorarensen skoraði. Aðeins þremur mínútum síðar var varnarmaðurinn Guðrún Erla Hilmarsdóttir á ferðinni eftir hornspyrnu og tvöfaldaði forystu gestanna.

Serbinn Danka Podovac minnkaði muninn á besta tíma fyrir heimakonur á lokamínútu fyrri hálfleiks með marki beint úr aukaspyrnu og gaf Eyjakonum góða von.

Kantmaðurinn Vesna Vmiljkovic jafnaði metin fyrir Eyjakonur um miðjan síðari hálfleikinn og leikurinn í járnum. Bæði lið urðu einum færri á 84. mínútu þegar Vesnu Smiljkovic og Rögnu Björk Einarsdóttur var vikið af velli með rautt spjald.

Eyjakonan í Kópavogsliðinu, Fanndís Friðriksdóttir, virtist hafa tryggt Breiðabliki farseðilinn í átta liða úrslitin þegar hún skoraði tveimur mínútum fyrir leikslok. Engu að síðar tókst Eyjakonum að jafna. Julie Nelson, miðvörður og landsliðsmaður Norður-Íra, jafnaði metin á fjórðu mínútu viðbótartíma úr vítaspyrnu.

Framlengingin byrjaði á því að Elínborgu Ingvarsdóttur, miðverði ÍBV, var vikið af velli fyrir að gefa Andreu Hauksdóttur olnbogaskot. Blikar manni fleiri.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var jöfn 3-3 en Fanndís Friðriksdóttir kom gestunum yfir með öðru marki sínu á 114. mínútu. Eyjakonur, sem enn voru manni færri, gáfust ekki upp og varamaðurinn Shaneka Gordon nýtti hraða sinn og jafnaði metin á 117. mínútu með marki upp á sitt einsdæmi. Jafnt og vítaspyrnukeppni framundan.

Dramatíkin í vítaspyrnukeppninni var mikil. Hlín Gunnlaugsdóttir klúðraði öðru víti Blika og Eyjakonur gátu tryggt sér sigur í sinni fimmtu spyrnu. Sigríði Láru Garðarsdóttur brást hins vegar bogalistin og fara þurfti í bráðabana. Þar varði Birna Kristjánsdóttir spyrnu Önnu Þórunnar Guðmundsdóttur og Kópavogsstelpur fögnuðu sigri.

Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net.

Gangur vítaspyrnukeppninnar:

4-5 Fanndís Friðriksdóttir skoraði

5-5 Julie Nelson skoraði

5-5 Hlín G klúðraði víti

6-5 Hlíf Hauksdóttir skoraði

6-6 Andrea R. Hauksdóttir skoraði

7-6 Shaneka Gordon skoraði

7-7 Guðrún Erla Hilmarsdóttir skoraði

8-7 Elísa Viðarsdóttir skoraði

8-8 Hildur Sif Hauksdótir skoraði

8-8 Sigríður Lára Garðarsdóttir klúðraði víti

8-9 María Rós Arngrímsdóttir skoraði

8-9 Anna Þórunn Guðmundsdóttir klúðraði víti -Breiðablik sigrar

Þetta var annar sigur Blika í Eyjum á tímabilinu en Blikar unnu 1-0 sigur í viðureign liðanna í Heimaey fyrr í sumar.

Leikirnir sjö sem eftir eru í 16-liða úrslitum bikarsins fara fram á föstudag og laugardag.

Föstudagur

Höttur - Valur kl. 18

Selfoss - FH kl. 19.15

KR - HK/Víkingur kl. 19.15

Fylkir - Haukar kl. 19.15

Laugardagur kl. 14.00

Keflavík - Þór/KA

Afturelding - ÍA

Stjarnan - Fjölnir



Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net.


Tengdar fréttir

Blikakonur án bikarsigurs í þrjú ár - mæta ÍBV í Eyjum í kvöld

Stórleikur sextán liða úrslita Borgunarbikars kvenna fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld þegar ÍBV tekur á móti Breiðabliki en leikurinn hefst klukkan 17.00. Þarna eru að mætast liðin í 3. og 4. sæti Pepsi-deildar kvenna en hinir sjö leikirnir verða síðan spilaðir á föstudag og laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×