NBA í nótt: Charlotte lagði Lakers Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 15. febrúar 2011 10:02 Gerald Wallace sækir að Ron Artest í leiknum í nótt. Mynd/AP
Gerald Wallace skoraði 20 stig og tók 11 fráköst í 109-89 sigri Charlotte Bobcats gegn meistaraliði LA Lakers á heimavelli. Þetta er annar tapleikur Lakers í röð en Kobe Bryant skoraði 20 stig fyrir Lakers gegn liðinu hans Michael Jordan. Charlotte hefur ágætist tak á Lakers því þetta var áttundi sigur liðsins gegn Lakers í síðustu tíu leikjum. San Antonio Spurs sýndi styrk sinn gegn New Jersey á útivelli með 102-89 sigri. San Antonio er með besta vinningshlutfallið í NBA deildinni og liðið virðist til alls líklegt í úrslitakeppninni. Tim Duncan skoraði 15 stig og tók 11 fráköst í liði San Antonio og Argentínumaðurinn Manu Ginobili skoraði 22. Framherjinn Josh Smith skoraði 27 stig fyrir Atlanta í 94-79 sigri liðsins gegn Detroit á útivelli. Detroit naði aðeins að skora 28 stig í síðari hálfleik gegn sterkri vörn Atlanta. Argentínumaðurinn Carlos Delfino skoraði 26 stig og þar af 16 í fjórða leikhluta fyrir Milwaukee í 102-78 sigri liðsins gegn LA Clippers. Delfino hitti úr 5 af alls 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Leikstjórnandinn Brandon Jennings skoraði 20 stig og John Salmons var með 16 fyrir Milwaukee.Úrslit frá því í gær: Charlotte - LA Lakers 109-89 New Jersey - San Antonio 85-102 Detroit - Atlanta 79-94 Milwaukee - LA Clippers 102-78 Minnesota - Portland 81-95 Houston - Denver 121-102
NBA Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira