Pippen á meðal þekktra gjaldþrota NBA leikmanna Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 17. nóvember 2011 12:15 Scottie Pippen er á meðal fyrrum NBA leikmanna sem hafa tapað öllu eftir að ferli þeirra lauk. Getty Images / Nordic Photos
Deila eigenda og samtaka leikmanna í NBA deildinni í körfuknattleik virðist engan endi ætla að taka. Samningafundir hafa engu skilað og búið er að fresta keppni til 15. desember og útlit fyrir að deilan leysist ekki fyrr en eftir áramót. NBA leikmenn eru flestir á ofurlaunum en það vekur athygli að 60% fyrrum NBA leikmanna lenda í fjárhagsvændræðum 5 árum eftir að ferli þeirra lýkur. Margir þekktir kappar hafa lent í fjárhagsvandræðum eftir að ferli þeirra og má þar nefna Scottie Pippen – fyrrum leikmann meistaraliðs Chicago Bulls. Það eru margar ástæður fyrir því að leikmenn verða gjaldþrota eftir að ferli þeirra lýkur. Slæmar ráðleggingar í fjárfestingum er ein þeirra, svik umboðsmanna og lögfræðinga eru einnig þekktar stærðir en flestir leikmenn hafa einfaldlega sóað öllum sínum penginum í tóma vitleysu. Scottie Pippen, einn besti leikmaður NBA deildarinnar frá upphafi lék stórt hlutverk í ofurliði Chicago Bulls þar sem hann og Michael Jordan voru aðalmennirnir. Hann var tekinn inn í frægðarhöll NBA árið 2001 en Pippen varð NBA meistari alls 6 sinnum og er hann eini leikmaðurinn sem hefur náð því að vinna tvívegis Ólympíugull og NBA meistaratitil á sama tímabilinu. Pippen er einn fjögurra leikmanna Bulls sem hafa fengið keppnistreyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli félagsins og verður númerið 33 aldrei notað aftur af leikmanni Bulls. Pippen valdi sér slæma ráðgjafa þegar kom að fjármálum. Hann tapaði um 14 milljörðum kr., öllu sem hann átti, og fór hann í mál gegn fyrrum ráðgjöfum sínum. Pippen vann það mál og náði hann um 250 milljónum kr. til baka. Á meðal fjárfestinga sem Pippen hefur eflaust séð eftir er kaup hans á einkaþotu sem kostaði um 500 milljónir kr. Þotan var kyrrset vegna skulda aðeins einum mánuði eftir að hann keypti þotuna. Antoine Walker - tapaði öllu vegna spilafíknar Walker var í meistaraliði Miami Heat árið 2006 og var þar áður lykilmaður í Boston Celtics.Getty Images / Nordic PhotosWalker var í meistaraliði Miami Heat árið 2006 og var þar áður lykilmaður í Boston Celtics. Walker lék í 15 ár í NBA deildinni en hann tapaði öllu vegna spilafíknar. Talið er að hann hafi tapað um 13 milljörðum kr. Walker hefur reynt að komast að hjá atvinnumannaliði á ný en hann var handtekinn árið 2009 eftir að hann reyndi að borga um 94 milljóna kr. spilaskuld í Las Vegas með ávísun sem reyndist vera „gúmmítékki". Í maí árið 2010 var Walker lýstur gjaldþrota. Hann átti þá húseign í Miami sem er metin á 240 milljónir kr. en á húsinu hvíldu skuldir upp á 480 milljónir kr. Latrell Sprewell - 12 milljarðar kr. í tekjur á ferlinum Latrell Sprewell fór sínar eigin leiðir.Getty Images / Nordic PhotosFáir hafa vakið eins mikla athygli fyrir „fjárhagslega heimsku". Sprewell var hörkuleikmaður en hann komst fyrst í fréttirnar þegar hann reyndi að kyrkja þjálfara sinn P.J. Carlesimo hjá Golden State Warriors árið 1997. Í kjölfarið fékk hann 68 leikja bann, án launa. Sprewell lék m.a. með New York Knicks og er talið að hann hafi fengið um 12 milljarða kr. í tekjur á ferlinum. Ferli hans lauk þegar hann hafnaði þriggja ára samningi við Minnesota Timberwolves upp á 3,5 milljarða kr. Sprewell sagði að upphæðin væri ekki nógu há. „Ég þarf að sjá fyrir fjölskyldu," var eitt af gullkornið sem datt af vörum Sprewell þegar hann útskýrði ákvörðun sína að hafna samningnum. Árið 2007 var Sprewell atvinnulaus, ekkert lið hafði áhuga á honum. Og smátt og smátt missti hann flestar eignir sínar vegna skulda Kenny Anderson - dýr skilnaður varð honum að falli Kenny Anderson lék með 9 liðum á ferlinum í NBA deildinni.Getty Images / Nordic PhotosÖrvhenti bakvörðurinn náði að öngla saman um 7 milljörðum kr. á ferlinum en hann lék með 9 liðum. Þar á meðal Boston Celtics og New Jersey Nets þar sem saga hans hófst í NBA. Einkalíf Anderson er skrautlegt. Hann hefur þrisvar gengið í hjónaband og fyrsti skilnaðurinn reyndist dýr. Anderson náði aldrei tökum á eyðslu sinni og þegar ferli hans lauk voru fjárhagslegar skuldbindingar hans um 5milljónir kr. á mánuði og réði hann ekki við það og var lýstur gjaldþrota. Derrick Coleman - gjaldþrota þrátt fyrir 10 milljarðar kr. tekjur Derric Coleman vann sér inn um 10 milljarða kr. á ferlinum en er núna gjaldþrota.Getty Images / Nordic PhotosColeman gat á góðum degi verið einn besti leikmaður NBA deildarinnar þegar hann nennti að reima skóna. Honum var líkt við Charles Barkley þegar hann var valinn af New Jersey Nets árið 1990 í háskólavalinu. Örhventur hávaxinn framherji með mikla skot – og boltaækni. Coleman náði aldrei að gera það sem ætlast var til af honum. Hann var yfirleitt of þungur og áfengisvandamál fylgdu honum eins og skugginn. Á 15 ára tímabili í NBA deildinni fékk Coleman um 10,5 milljarða kr. í tekjur. Það er allt saman farið og í mars árið 2010 var Coleman gjaldþrota og skuldaði þar að auki um hálfan milljarð kr. og voru kröfuhafarnir um 100.
NBA Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Vilja lífstíðarbann fyrir þjálfara sem tók upp kvenkyns leikmenn í laumi Fótbolti Keppir á Steraleikunum en ætlar líka á næstu Ólympíuleika Sport Trump: „Mér er alveg sama hvort Íran tekur þátt í HM“ Fótbolti Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Enski boltinn Liverpool setti afar svekkjandi met Enski boltinn Gullit er hættur að horfa á fótbolta Enski boltinn Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Enski boltinn Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Enski boltinn Fleiri fréttir Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Uppgjörið: Litáen - Ísland 99-82 | Hefndu sín á strákunum okkar Toppliðið í Litaén hjálpar landsliðinu gegn Íslandi Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg „Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Gríðarjafn pakki eftir grindvískan sigur Uppgjörið: Valur - Haukar 59-85 | Öruggt hjá Haukum að Hlíðarenda Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar Utan vallar: Himnafaðirinn, Jordan og kvöldið hans Elvars Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast“ „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Uppgjör: Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Fyrsti sigur Íslands á Litháen í 34 ár Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Ítalir fóru illa með Bretana Í toppstandi þrátt fyrir að úða í sig pasta á Ítalíu Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Komst norður í snjó, búskap og dorg: „Dásamlegt“ Heim í hlýjuna en alls ekki á heimleið Chris Bosh vaknaði í eigin blóðpolli: „Glaður að vera á lífi“ Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Skorti orku og ástríðu Sjá meira