Innlent

Eldstöðin sofnuð og tiltektin langt komin

Hreinsunarstarf er langt komið
Hreinsunarstarf er langt komið Mynd: Stefán Karlsson


Eldstöðin í Grímsvötnum hefur ekkert bært á sér í rúma tvo sólarhringa og bendir nú flest til þess að gosinu hafi lokið á laugardagsmorgun. Í Skaftárhreppi er hreinsunarstarf langt komið en þó eru enn nokkrir dagar í að sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri verði opnuð.

Síðustu merki um eldsumbrotin í Grímsvötnum sáust á jarðskjálftamæli á Grímsfjalli klukkan sjö á laugardagsmorgni en eftir það hefur enginn órói komið fram á mælum. Þá hafði mjög dregið úr gosinu og virðist því raunar að mestu hafa lokið á fimmtudeginum.

Svo heppilega vildi til að kraftmiklar norðan og norðaustanáttir dagana á undan höfðu þá blásið út á haf stórum hluta öskunnar sem féll í byggð. Fyrir helgi tóku svo við rigingar á Kirkjubæjarklaustri og nærsveitum sem hjálpuðu enn betur til við að skola öskunni burt.

Heimamenn ásamt fjölda fólks úr öðrum landshlutum, þar á meðal slökkviliðsmönnum, hafa síðan verið að hreinsa til í kringum hýbýli fólks, stofnanir og fyrirtæki. Anton Kári Halldórsson, byggingarfulltrúi Skaftárhrepps, sagði nú fyrir hádegi að hreinsunarstarf væri langt komið, en einn slökkviliðsbíll, frá Reykjavíkurflugvelli, væri að fara yfir það sem eftir væri. Þó væru einn einhverjir dagar í að hreinsun sundlaugarinnar á Klaustri lyki og fara þyrfti með myndavél í gegnum götulagnir sem væru sumar enn stíflaðar af ösku.

Þrátt fyrir að horfur séu nú betri, en leit út fyrir eftir fyrstu sólarhringa gossins, sjá Skaftfellingar fram á að glíma við öskuryk í lofti næstu vikur og mánuði, enda mikil aska í túnum og á heiðum. Þannig mældist svifryk á Klaustri um tíma í morgun yfir 100 míkrógrömm á rúmmetra, sem þýðir að loftgæðin voru slæm fyrir fólk með öndunarfærasjúkdóma, en ástandið lagaðist þó á ný fyrir hádegi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×