Deilur og lögreglumál í aðalhlutverki hjá Marseille 15. mars 2011 14:45 Ramires, leikmaður Chelsea, er hér í baráttunni gegn Brandao. Nordic Photos/Getty Images
Franska liðið Marseille mætir Manchester United í kvöld í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hafa leikmenn franska liðsins þurft að hugsa um ýmislegt annað en fótbolta í aðdraganda leiksins. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli og eru möguleikar Marseille því enn til staðar en það hefur margt gengið á í herbúðum liðsins á undanförnum dögum. Þar ber hæst að framherjinn Brandao var handtekinn en hann er til rannsóknar vegna atviks sem átti sér stað á næturklúbbi þann 2. mars s.l. Brandao, sem er þrítugur, er ásakaður um kynferðisafbrot gegn 23 ára gamalli konu en leikmaðurinn hefur játað að hafa sofið hjá konunni og er málið enn til meðferðar hjá lögreglunni. Þjálfari Marseille Didier Deschamps hefur einnig verið í sviðsljósinu í fjölmiðlum en hann hefur gagnrýnt forsete Marseille, Jean-Claude Dassier. Forsetinn telur að aginn í herbúðum liðsins sé ekki nægjanlega mikill. Dassier setur stórt spurningamerki við þá staðreynd að Brandao var á næturbrölti rétt fyrir leik í deildarkeppninni gegn Lille. Deschamps svaraði forsetanum fullum hálsi og sagði að málið hefði verið tekið föstum tökum hjá félaginu - en lögreglan hefur yfirheyrt marga leikmenn og starfsmenn vegna málsins.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira