NBA: Atlanta vann Chicago, 50. sigurinn hjá Spurs og Durant meiddist Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2011 09:00 Al Horford. Mynd/AP
Atlanta Hawks var aðeins yfir síðustu 29 sekúndurnar þegar liðið vann 83-80 sigur á Chicago Bulls í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio Spurs vann sinn 50. sigur á tímabilinu, Boston vann sinn leik og það gerði Oklahoma City Thunder líka þrátt fyrir að missa Kevin Durant meiddan af velli. Denver Nuggets vann sinn fimmta sigur í sex leikjum síðan félagið lét Carmelo Anthony fara en Anthony hjálpaði New York Knicks að vinna New Orleans Hornets.Al Horford skoraði 31 stig og kom Atlanta Hawks yfir í fyrsta sinn 29 sekúndum fyrir leikslok í 83-80 sigri á Chicago Bulls. Chicago komst í 14-0 og var með 19 stiga forskot í öðrum leikhluta en missti frá sér leikinn. Horford var einnig með 16 fráköst í leiknum og annar af tveimur stolnum boltum hans innsiglaði síðan sigurinn. Luol Deng skoraði 15 stig fyrir Chicago, Joakim Noah var með 13 stig og 12 fráköst og Derrick Rose skoraði 12 stig og gaf 12 stoðsendingar.Mynd/APGeorge Hill skoraði 22 stig þegar San Antonio Spurs varð fyrsta liðið til þess að vinna 50 leiki á tímabilinu. San Antonio fór til Cleveland og vann þar 109-99 sigur. Tim Duncan var með 16 stig og DeJuan Blair bætti við 14 stigum og 10 fráköstum en Spurs hafði tapað fyrir Memphis kvöldið áður. Tony Parker missti af sínum öðrum leik í röð vegna meiðsla á kálfa. Nýliðinn Samardo Samuels var með 23 stig og 10 fráköst hjá Cleveland í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu.Kevin Garnett var með 28 stig og 11 fráköst í öruggum 115-103 sigri Boston Celtics á Phoenix Suns. Tveir aðrir voru líka með tvennur, Paul Pierce skoraði 16 stig og tók 13 fráköst og Rajon Rondo var með 16 stig og 15 stoðsendingar. Aaron Brooks skoraði 17 stig fyrir Phoenix, Jared Dudley var með 15 stig og Marcin Gortat bætti við 13 stigum og 13 fráköstum. Suns-liðið kláraði síðustu 17 mínúturnar án Vince Carter og Channing Frye eftir að þeir rákust illa saman.Mynd/APKevin Durant skoraði 21 stig fyrir Oklahoma City Thunder í 113-89 sigri á Indiana Pacers áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn vegna ökklameiðsla þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Russell Westbrook var með 21 stig og 9 stoðsendingar og James Harden skoraði 17 af 20 stigum sínum í fyrri hálfleiknum þegar Thunder-liðið náði 22 stiga forystu. Tyler Hansbrough skoraði 13 stig fyrir Indiana.Denver Nuggets liðið er í góðum gír eftir að liðið sendi frá sér Carmelo Anthony til New York Knicks. Liðið vann 120-80 sigur á Charlotte Bobcats í nótt og hefur unnið fjóra af fimm leikjum síðan Carmelo fór. Wilson Chandler, fyrrum New York maður, skoraði 16 stig og var einn af sjö leikmönnum sem skoraði tíu stig eða meira hjá Denver. Nene, Chris Andersen, Ty Lawson og J.R. Smith skoruðu allir 14 stig en Matt Carroll var stigahæstur hjá Charlotte með 19 stig.Amare Stoudemire var með 24 stig og Carmelo Anthony skoraði 22 stig þegar New York Knicks vann 107-88 sigur á New Orleans Hornets. Toney Douglas tók stöðu hins meidda Chauncey Billups í byrjunarliðinu og var með 24 stig. Jarrett Jack skoraði 21 stig fyrir Hornets sem töpuðu sínum þriðja leik í röð. Chris Paul hefur aðeins hitt úr 7 af 29 skotum sínum í þessum þremur leikjum.Eric Gordon snéri aftur í Los Angeles Clippers liðið og átti mikinn þátt í að liðið vann 106-103 sigur á Houston Rockets og endaði fimm leikja taphrinu sína. Gordon var með 9 af 24 stigum sínum á síðustu fimm mínútum leiksins. Blake Griffin var með 20 stig og 14 fráköst og Chris Kaman skoraði 10 af 21 stigi sínu í fjórða leikhlutanum. Kyle Lowry var með 24 stig og 11 stoðsendingar hjá Houston.Mynd/APKevin Love var með 20 stig og 20 fráköst þegar Minnesota Timberwolves vann 116-105 sigur á Detroit Pistons. Þetta var 48. leikurinn í röð sem Love nær tvennu en hann vantar nú þrjá leiki í viðbót til þess að jafna afrek Moses Malone frá 1978-1979.Wesley Matthews skoraði 11 af 21 stigi sínu í fjórða leikhluta í 107-102 sigri Portland Trail Blazers á Sacramento Kings. LaMarcus Aldridge var með 20 stig og 10 fráköst hjá Portland og Andre Miller skoraði 19 stig. Nýliðinn DeMarcus Cousin var með 28 stig og 11 fráköst hjá Sacramento og Marcus Thornton skoraði 26 stig.Stephen Curry skoraði 29 stig þegar Golden State Warriors vann 106-102 útisigur á Washington Wizards. Monta Ellis skoraði 21 stig og David Lee var með 9 stig og 16 fráköst. Nick Young skoraði 31 stig fyrir Washington-liðið sem var án þjálfara síns Flip Saunders sem var heima hjá veikri móður sinni. Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:Mynd/APAtlanta Hawks-Chicago Bulls 83-80 Cleveland Cavaliers-San Antonio Spurs 99-109 Washington Wizards-Golden State Warriors 102-106 Boston Celtics-Phoenix Suns 115-103 Detroit Pistons-Minnesota Timberwolves 105-116 New York Knicks-New Orleans Hornets 107-88 Oklahoma City Thunder-Indiana Pacers 113-89 Denver Nuggets-Charlotte Bobcats 120-80 Sacramento Kings-Portland Trail Blazers 102-107 Los Angeles Clippers-Houston Rockets 106-103
NBA Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjá meira