Handbolti

Sebastían áfram með Selfoss næsta vetur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sebastían Alexandersson mun áfram halda um stjórnartaumana hjá karlaliði Selfoss í handknattleik er liðið leikur í N1-deildinni næsta vetur. Það er sunnlenska.is sem greinir frá þessu.

Selfoss vann 1. deildina í vetur og leikur því á meðal þeirra bestu næsta vetur.

Sebastían mun þess utan líklega leika áfram með liðinu. Selfoss er að leita að nýjum aðstoðarþjálfara þar sem Finnbogi Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis.

Selfoss hefur einnig samið við markvörðinn Birki Fannar Bragason og félagið vinnur að endurnýjum samninga við fleiri leikmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×