Innlent

Óttast flótta lækna til einkasjúkrahúss

heilbrigðismál Geir Gunnlaugsson landlæknir telur fyrirhugað einkasjúkrahús á Ásbrú ógn við heilbrigðiskerfið.

Hann segir starfsemina geta smám saman grafið undan ákveðinni þjónustu sem til dæmis Landspítalinn veitir. „Það flæðir undan sérfræðiþekkingu á Landspítalanum sem fer yfir í einkarekin sjúkrahús," segir hann.

Tilteknar stéttir verði eftirsóttar, til dæmis skurðlæknar, svæfingalæknar og vel menntaðir hjúkrunarfræðingar. Heilbrigðiskerfið þurfi að vera undir slíkt búið.

Hvað sem þessum áhyggjum líður telur Geir allar líkur á að einkasjúkrahúsið, sem hyggst bjóða upp á sérhæfðar meðferðir fyrir útlendinga, uppfylli skilyrði laga til starfsemi og fái því tilskilin leyfi. Forsvarsmenn þess hafa kynnt Geir áform sín og segir hann þá fullyrða að byggt verði á fullkomnustu gæðastöðlum og unnið í samstarfi við alþjóðlegt vottunarfyrirtæki. Leyfi verði hins vegar ekki veitt fyrr en allt er orðið klárt en það sé hvorki á hans færi né ráðherra að stoppa ferlið.

Geir segir verkefnið vera viðskiptahugmynd einkaaðila sem reiknað hafi út að hugmyndin geti gefið ágóða. Bankar og aðrir verði að taka ákvarðanir á þeim grundvelli en ekki á grunni þess að landlæknir hafi veitt leyfi.

Róbert Wessman, fyrrverandi forstjóri Actavis, stendur ásamt fleirum að sjúkrahúsinu á Ásbrú. Verður það til húsa þar sem sjúkrahús Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli var.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar sem á húsakostinn tekur þátt í verkefninu. Auglýsti það á dögunum eftir verktökum til að innrétta húsið upp á nýtt. Á verkinu að vera lokið eigi síðar en í marslok á næsta ári.

Samkvæmt áformum munu 200 til 300 ný störf skapast í tengslum við sjúkrahúsið og árlegar tekjur geta numið allt að 3,5 milljörðum króna. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×